Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2026 16:02 Jon Rahm vill ekki sætta sig við kröfur DP-heimsmótaraðarinnar en sætti sig við málamiðlun. Getty/Francois Nel Spænski kylfingurinn Jon Rahm heldur því fram að DP-heimsmótaröðin sé hreinlega að „kúga kylfinga“ eins og hann orðar það og útskýrði einnig hvers vegna hann er ekki í hópi keppenda á LIV-mótaröðinni. Sumir kylfingar hafa undirritað samkomulag sem gerir þeim kleift að spila á mótum beggja mótaraða. Rahm er ekki í þeim hópi.
Átta leikmenn fengu í síðasta mánuði undanþágu frá DP World Tour, heimsmótaröðinni sem var áður þekkt sem Evrópumótaröðin, til að taka þátt í LIV-mótum á þessu ári. Það gerir þeim kleift að halda aðild sinni og vera áfram gjaldgengir í Ryder-bikarinn. Undanþágan fól í sér samkomulag um að greiða útistandandi sektir, sem sagðar eru vera um 2,5 milljónir punda, sem lagðar voru á fyrir að spila á LIV-mótum án leyfis frá DP-heimsmótaröðinni, afturköllun allra yfirstandandi áfrýjana og samþykki um að taka þátt í tilteknum mótum á DP-heimsmótaröðinni. Tvöfaldur risamótsmeistari Rahm er fyrrverandi efsti maður heimslistans og tvöfaldur risamótsmeistari og hann ætlar ekki að samþykkja þessi skilyrði. Hann hefur þó gefið í skyn að hægt væri að finna málamiðlun ef fjölda DP World Tour-móta sem þyrfti að spila yrði fækkað. ‘They’re extorting players like myself’ – Jon Rahm on why he’s refusing to sign DP World Tour deal https://t.co/4q72p6G5Si— Irish Independent Sport (@IndoSport) March 3, 2026 „Ég veit ekki hvaða leik þeir eru að reyna að spila núna. En það virðist bara eins og þeir séu að nota okkur til að hagnast á áhrifum okkar á mótum og sekta okkur og reyna að græða á báða bóga á því sem við höfum upp á að bjóða,“ sagði Jon Rahm. Myndi þá skrifa undir í kvöld „Það er bara eins og þeir séu að kúga leikmenn eins og mig og unga leikmenn sem hafa ekkert með pólitíkina í íþróttinni að gera. Ég sagði þeim reyndar að lækka þetta niður í fjögur mót, eins og lágmarkið segir til um, og ég myndi skrifa undir í kvöld,“ sagði Rahm. „Þeir hafa ekki samþykkt það. Ég neita einfaldlega að spila sex mót. Ég vil það ekki og það er ekki það sem reglurnar segja. Mér líkar bara ekki við þessa stöðu. Mér finnst að við ættum að geta spilað frjálslega þar sem við viljum og haft val um að spila þar sem við viljum og ekki láta stjórna því hvað við gerum. Sérstaklega ég. Ég get ekki talað fyrir aðra, aðeins sjálfan mig,“ sagði Rahm. Það mun ekki breytast „Ég hef alltaf skuldbundið mig til að spila lágmarksfjölda [á DP heimsmótaröðinni] og ég held að ég hafi spilað fjögur mót, þar á meðal Opna spænska, á hverju ári nema einu sem atvinnumaður, og ég skuldbind mig til að gera það. Það mun ekki breytast. Ég ætla mér enn að gera það,“ sagði Rahm. Afstaða hans gæti sett þátttöku hans í Ryder-bikarnum á Írlandi á næsta ári í uppnám, en hann hefur verið í síðustu fjórum liðum Evrópu. 🚨🗣️😡 #EXTORTION — Jon Rahm TEE’S OFF on the DP World Tour with explosive quotes from Hong Kong, accusing the league of extorting its own players. “I don't know what game they're trying to play right now, but it just seems like in a way they're using us to -- they're using our… pic.twitter.com/nVeJS16WRN— NUCLR GOLF (@NUCLRGOLF) March 3, 2026
Golf Mest lesið Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Uppgjörið: Spánn - Ísland 3-0 | Spænska liðið sýndi mátt sinn og megin á köflum Fótbolti Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Formúla 1 Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Fótbolti Fleiri fréttir Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira