Viðskipti erlent

Ráku blaða­mann vegna falskra gervi­greindar­til­vitnana

Kjartan Kjartansson skrifar
Mörgum verður nú hált á svellinu með innreið gervigreindarforrita. Blaðamaður Ars Technica notaði tól sem byggði á Claude frá Anthropic og hafði hluti eftir viðmælanda sem hann sagði aldrei.
Mörgum verður nú hált á svellinu með innreið gervigreindarforrita. Blaðamaður Ars Technica notaði tól sem byggði á Claude frá Anthropic og hafði hluti eftir viðmælanda sem hann sagði aldrei. Vísir/Getty

Bandarískur tæknivefmiðill rak reyndan blaðamann eftir að miðillinn birti grein með tilvitnunum í raunverulega manneskju sem gervigreind skáldaði upp. Blaðamaðurinn bar því við að hann hefði verið veikur og vansvefta þegar hann gerði „alvarleg mistök“.

Greinin sem fjallaði um uppákomu þar sem gervigreindarspjallmenni virtist hafa skrifað og birt harðorða grein um nafngreindan tölvunarfræðing birtist á tæknivefmiðlinum Ars Technica 13. febrúar. Miðillinn er í eigu útgáfufélagsins Condé Nast.

Fljótlega eftir að greinin birtist kvartaði tölvunarfræðingurinn undan því að hann hefði aldrei sagt það sem haft var eftir honum í greininni. Olli það verulegu fjaðrafoki hjá lesendum miðilsins sem helltu úr skálum reiði sinnar á spjallþráðum á vefsíðunni.

Ars Technica dró greinina síðar til baka og baðst ritstjórinn afsökunar. Staðfesti hann að gervigreindartók hefði búið tilvitnanirnar til og eignað þær manneskju sem lét orðin ekki falla. Þetta hefðu verið alvarleg mistök en að þau virtust hafa verið einstakt tilfelli.

Notaði „tilraunakennt“ gervigreindartól

Annar blaðamannanna sem var skrifaður fyrir greininni sagðist sjálfur axla fulla ábyrgð á mistökunum. Hann hefði verið veikur heima með hita og vansvefta.

Sorry all this is my fault; and speculation has grown worse because I have been sick in bed with a high fever and unable to reliably address it (still am sick) I was told by management not to comment until they did. Here is my statement in images below arstechnica.com/staff/2026/0...

[image or embed]

— Benj Edwards (@benjedwards.com) February 15, 2026 at 9:03 PM

Hann hefði óviljandi gert alvarleg mistök í blaðamennsku þegar hann reyndi að nota „tilraunakennt“ gervigreindartól sem byggði á Claude-mállíkaninu til að hjálpa sér að ná í „viðeiganda orðrétta frumheimild“. Fyrir vikið hefði hann óvart notað umorðun gervigreindarinnar á ummælum viðmælandans í staðinn fyrir það sem hann sagði raunverulega.

Nú segir vefmiðillinn Futurism að blaðamaðurinn hafi verið rekinn. Hvorki útgefandinn, vefmiðillinn né blaðamaðurinn sjálfur vildu ræða það. Höfundarsiðu blaðamannsins á vefsíðunni var þó breytt í lok síðustu viku. Þar stendur nú að hann „hafi verið“ blaðamaður Ars Technica sem sérhæfði sig í fréttum af gervigreind.

Vitnað í manneskju, stofnun og viðtal sem engin merki finnast um

Fjölmiðlar hafa ekki verið ónæmir fyrir gervigreindarfárinu sem geisað hefur síðustu ár þar sem fjöldi fyrirtækja á alls kyns sviðum reynir að taka tæknina í þjónustu sína með misjöfnum árangri.

Bein tilvitnun í erlendan sérfræðing var fjarlægð úr fréttaskýringu um velgengni Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem birtist á mbl.is í júlí í fyrra. Fyrirsögn greinarinnar var „Trump gerði allt rétt“.

Mbl hafði eftir aðalhagfræðingi tiltekinnar stofnunar að Donald Trump Bandaríkjaforseti stæði fyrir byltingu í fjárfestingum. Ekkert bendir til þess að hagfræðingurinn eða stofnunin sem hann var sagður starfa fyrir sér til.AP

„Þetta er ekki bara pólitísk endurkoma — þetta er líka fjárfestingarbylting, sem endurspeglast í hækkun hlutabréfa og vaxandi trausti fjárfesta,“ hafði vefmiðillinn eftir Lauren Mitchell, aðalhagfræðingi hjá Liberty Analytics, úr viðtali við CNBC-sjónvarpsstöðina bandarísku.

Ekki er hægt að finna nein merki um viðtal við manneskju með því nafni frá stofnun með því heiti á CNBC. Þá eru engar heimildir um Liberty Analytics að finna á netinu.

Blaðamaðurinn sem skrifaður var fyrir greininni neitaði því að hún hefði verið skrifuð af gervigreind í skriflegu svari til Vísis í fyrra. Sagði hann eitthvað hafa skolast til þegar hann skoðaði og þýddi tilvitnanir um efnahagsástandið í Bandaríkjum.

Neðst í greininni stendur nú: „Í fyrri útgáfu var vitnað í rangan heimildarmann“. Blaðamaðurinn starfar ekki lengur fyrir mbl.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×