Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir skrifar 2. mars 2026 09:17 Þegar rætt er um fjölgun öryrkja er oft látið að því liggja að fólk sé að nýta sér kerfið. Að örorka sé orðin valkostur. Sú mynd stenst illa raunveruleikann. Örorka er neyðarástand í lífi einstaklings – ekki valkostur. Þegar öryrkjum fjölgar þurfum við að spyrja hvað í samfélaginu hafi brugðist. Fólk lendir í slysum. Fólk veikist skyndilega, þróar með sér langvinna sjúkdóma og verður fyrir áföllum. Börn fæðast fötluð. Ungmenni greinast með alvarlegar raskanir. Það er ýmislegt sem getur komið uppá sem verður þess valdandi að einstaklingur dettur út af vinnumarkaði. Enginn skipuleggur líf sitt í kringum örorku. Þegar kerfin ná ekki utan um fjölbreytileikann Fötlun mótast ekki eingöngu af heilsufari heldur líka af umhverfi. Skólakerfi sem gerir ráð fyrir að öll börn passi í sama formið getur aukið vanda barna með ADHD, einhverfu og aðra námsörðugleika. Skólaforðun, kvíði og álag á fjölskyldur eru raunverulegar afleiðingar. Foreldrar minnka starfshlutfall eða enda í endurhæfingu og jafnvel á örorku vegna langvarandi streitu. Kennarar starfa við miklar kröfur og takmörkuð úrræði og sumir enda í kulnun. Vandi eins barns getur þannig haft keðjuverkandi áhrif á heila fjölskyldu – og jafnvel á starfsfólk skólans og þeirra fjölskyldur. Umhverfi getur einnig aukið líkamlega og andlega fötlun. Þegar byggingar, samgöngur og vinnustaðir eru ekki hannaðir með algilda hönnun að leiðarljósi verður fötlunin meiri en hún þyrfti að vera. Aðgengi er ekki sérlausn – það er forsenda þátttöku á vinnumarkaði. Þegar kerfin taka ekki mið af fjölbreytileika fólks aukast líkur á að fleiri falli út. Heilbrigðiskerfi og endurhæfing – ójöfnuður í aðgengi Sama mynstur sést í heilbrigðiskerfinu. Langir biðlistar eftir sérfræðilæknum. Takmarkað aðgengi að greiningu og meðferð. Skerðingar á niðurgreiðslum meðferða og lyfja hjá sjúkratryggingum. Sálfræðiþjónusta sem margir þurfa að greiða sjálfir. Vandinn byrjar oft á heilsugæslunni. Fólk bíður lengi eftir tíma hjá heimilislækni og þegar tími fæst er stundum aðeins hægt að ræða eitt erindi, þótt einkenni kunni að tengjast saman. Samskipti eru að miklu leyti rafræn og erfitt getur verið að fá skýringar eða svara til baka. Þetta hentar illa þegar glímt er við flókin eða samverkandi einkenni. Þegar snemmtæk íhlutun bregst lengist veikindatíminn og líkur aukast á langvinnum vanda. Hér birtist einnig ójöfnuður í endurhæfingu. Sumir fá aðgang að skipulögðu utanumhaldi, teymisvinnu og niðurgreiddri þjónustu í sérhæfðum endurhæfingarúrræðum eins og VIRK, þar sem markvisst er unnið að endurkomu til virkni. Aðrir, sem eru eingöngu inni í almenna heilbrigðiskerfinu, standa einir án teymis í kringum sig og þurfa sjálfir að finna úrræði og greiða kostnaðinn úr eigin vasa. Ekki allir hafa fjármagn til þess og því er hætta á að þeir geti ekki nýtt sér þau úrræði sem þeir þurfa á leið til bata. Það vantar úrræði sambærileg VIRK þar sem tryggt væri gott utanumhald fyrir fólk í endurhæfingu innan heilbrigðiskerfisins, með greiðu aðgengi að læknum, hjúkrunarfræðingum og sálfræðingum. Það er öfugsnúið að þeir sem eru verr staddir heilsufarslega og fjárhagslega hafi lakara aðgengi að skipulögðu utanumhaldi. Munurinn á utanumhaldi og fyrirsjáanleika er verulegur. Þegar teymi vinnur markvisst að bata eykst raunhæfur möguleiki á endurkomu til vinnu. Við þetta bætist óvissa í kringum greiðslur. Afgreiðsla umsókna um endurhæfingu eða framlengingu hjá Tryggingastofnun getur tekið allt að sex vikur. Á meðan ríkir óvissa um afkomu. Slík bið eykur streitu á viðkvæmum tíma. Fjárhagsáhyggjur og óvissa auka kvíða. Kvíði hægir á bata. Hægur bati eykur líkur á örorku. Þannig getur myndast vítahringur sem erfitt er að brjótast út úr. Launavísitalan í stærra samhengi Í þessu samhengi skiptir máli að ræða tengingu örorkugreiðslna við launavísitölu. Slík tenging er ekki umbun. Hún er trygging fyrir því að fólk sem hefur misst vinnufærni dragist ekki ár frá ári aftur úr almennri launaþróun. En hún leysir ekki rót vandans ein og sér. Ef markmiðið er raunverulega að fækka öryrkjum verðum við að horfa á heildarmyndina: aðgengi, snemmtæka íhlutun, algilda hönnun, heildstæða endurhæfingu og fyrirsjáanleika í stuðningskerfum. Kerfi sem refsar sjálfstæði Þegar fólk lendir á örorku tekur við kerfi sem í reynd getur refsað því fyrir að reyna að standa á eigin fótum. Launamaður getur tekið aukavinnu, leigt út eign eða byggt upp sparnað án þess að grunnlaunin séu skert. Öryrki nýtur ekki sömu stöðu. Ef einstaklingur á íbúð og reynir að leigja hana út í fjárhagsvanda skerðast örorkugreiðslur á móti. Sama á við um vexti af sparnaði. Að byggja upp varasjóð eða reyna að styrkja eigin stöðu getur leitt til lækkunar á framfærslu. Þótt markmiðið sé jafnræði hefur framkvæmdin þau áhrif að sjálfsbjargarviðleitni verður fjárhagslega áhættusöm. Kerfið sendir þau skilaboð að það sé öruggara að gera ekki neitt en að reyna að bæta stöðuna. Stuðningskerfi á að vera stökkpallur til aukins sjálfstæðis — ekki festing sem heldur fólki niðri. Hver er hvati til að „vilja gerast öryrki“? Það er stundum talað um örorku eins og hún sé þægilegur kostur. En hver væri hvati til að velja líf við lágmarksframfærslu, tekjutengdar skerðingar, stöðugt eftirlit og flókið regluverk þar sem sjálfsbjargarviðleitni getur leitt til lækkunar greiðslna? Hver væri hvati til að fara í gegnum langt ferli endurhæfingar, mats, synjana og endurmats? Öryrkjar búa ekki aðeins við fjárhagslega óvissu heldur einnig við reglulegt mat á réttindum sínum. Tekjur eru yfirfarnar, aðstæður metnar og staða endurskoðuð. Það er ekki líf sem flestir myndu velja ef raunhæfur kostur væri til staðar. Örorka er ekki verðlaun. Hún er niðurstaða þess að heilsan – eða aðstæðurnar – héldu ekki lengur. Ef umræðan á að vera sanngjörn verðum við að hætta að byrja á tortryggni og byrja frekar á raunveruleikanum. Örorka er ekki vandamálið. Hún er afleiðing. Ef fleiri detta út af vinnumarkaði verðum við að þora að horfa á kerfin sem áttu að grípa þau — skólakerfið, heilbrigðiskerfið, endurhæfinguna og stuðningskerfin í kringum afkomu. Að ræða „fjölgun“ án þess að ræða orsökina er einföldun sem þjónar engum. Ef við viljum færri á örorku þurfum við að byggja samfélag sem grípur fólk fyrr, styður það betur og gerir því kleift að taka þátt. Samfélag sem sparar í forvörnum og aðgengi mun alltaf borga í örorku. Höfundur hefur persónulega reynslu af endurhæfingu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Félagsmál Mest lesið Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Þegar sumarnámskeið eru ekki raunhæfur valkostur Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson skrifar Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Skoðun Samningsmarkmið Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar Skoðun Lækkum álögur og afnemum byggingarrétt af atvinnulóðum Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Beðið eftir Godot? 83 dagar, 179 tölvupóstar Einar Bárðarson skrifar Skoðun Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson skrifar Sjá meira
Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir Skoðun
Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson Skoðun
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar
Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar
Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir Skoðun
Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson Skoðun