Innlent

Vélar­vana bátur dreginn til hafnar í Sand­gerði

Atli Ísleifsson skrifar
Frá aðgerðum í nótt.
Frá aðgerðum í nótt. Aðsend

Björgunarskipið Hannes Þ var kallað út eftir að tilkynning barst um vélarvana bát sem rak hægt að landi rétt út af Sandgerði í gærkvöldi.

Í tilkynningu frá Björgunarbátasjóði Suðurnesja segir að tilkynningin hafi borist skömmu fyrir miðnætti.

„Var Hannes Þ. kominn að bátnum um klukkan 00:37. Vel gekk að koma taug yfir í bátinn og draga hann í land og var aðgerðum lokið um klukkan hálf tvö í nótt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×