Er gott að búa í Kópavogi? Sigurður Kári Harðarson skrifar 1. mars 2026 09:32 Kópavogur er frábær bær, það veit ég sem hef búið þar alla mína ævi. Þar er góð aðstaða til hreyfingar og félagslífs og bærinn hefur alla möguleika til að vera fyrirmyndarsveitarfélag. Samt hefur stjórnsýslan brugðist íbúum. Á síðustu fjórum árum hefur ítrekað verið gengið gegn gefnum loforðum og ákvarðanir teknar án raunverulegs samráðs. Traust íbúa hefur beðið hnekki og mikilvæg mál hafa setið eftir. Þetta er óásættanlegt. Nú er tími kominn á breytingar og stjórnsýslu sem stendur með íbúum, ekki gegn þeim. Tími fyrir nýja forgangsröðun í þágu allra bæjarbúa, ekki hluta af þeim. Ég treysti Samfylkingunni best til þeirra verka. Aðgengi fatlaðra að íþróttum og tómstundum er mjög ábótavant svo dæmi sé tekið. Í dag standa fötluðum einstaklingum í Kópavogi fá eða engin raunveruleg úrræði til boða þegar kemur að skipulagðri íþróttaiðkun. Afleiðingin er sú að fjölskyldur neyðast til að sækja þjónustu í önnur sveitarfélög, sem leiðir til aukins kostnaðar, mikils álags og óréttlætis. Þetta er sérlega umhugsunarvert í ljósi þess að í bænum starfa tvö af stærstu íþróttafélögum landsins, sem ættu að geta verið burðarstoðir í uppbyggingu aðgengilegs íþróttastarfs fyrir alla. Ég hef áður fjallað um það að fötluð systir mín hefur þurft að sækja sínar íþróttir í þrjú mismunandi sveitarfélög. Sund í Hafnarfjörð, fótbolta í Garðabæ og skautaiðkun í Reykjavík. Til þess að sveitarfélag virki þarf grunnþjónustan að vera í lagi. Annað mikilvægt mál er staða barnafjölskyldna, sérstaklega þegar horft er til leikskólamála. Leikskólagjöld í Kópavogi eru meðal þeirra hæstu á landinu og skortur á fyrirsjáanleika hvað varðar pláss eykur óöryggi hjá fjölskyldum. Þetta hefur bein áhrif á möguleika foreldra til að samræma atvinnuþátttöku og fjölskyldulíf. Ef sveitarfélagið nær ekki að bjóða upp á hagkvæm og áreiðanleg leikskólaúrræði er hætt við að fólk leiti í önnur sveitarfélög, sem veikir stöðu Kópavogs til lengri tíma litið. Lausnin felst ekki aðeins í gagnrýni heldur í markvissum aðgerðum. Sveitarfélagið þarf að setja skýra stefnu um aðgengi að íþróttum og tómstundum fyrir fatlaða, í samstarfi við íþróttafélög, foreldra og notendur þjónustunnar sjálfa. Það þarf að tryggja fjármögnun, menntun þjálfara og skipulag sem gerir öllum kleift að taka þátt án þess að þurfa að leita út fyrir bæjarmörkin. Jafnframt þarf að endurskoða leikskólamál í Kópavogi með það að leiðarljósi að lækka gjöld, auka fyrirsjáanleika og stytta biðlista. Slík fjárfesting er ekki kostnaður heldur fyrst og fremst grunnforsenda þess að fjölskyldur geti búið í bænum til framtíðar. Í grunninn snýst þetta um jafnræði í þjónustu. Þegar úrræði eru til staðar fyrir suma en ekki aðra skapast misrétti sem grefur undan samfélagslegri samheldni. Kópavogur hefur burði til að vera sveitarfélag sem stendur jafnfætis öðrum þegar kemur að velferð, aðgengi og stuðningi við íbúa sína. Til þess þarf að horfa heildstætt á þjónustu bæjarins og tryggja að hún nái til allra, óháð stöðu, aðstæðum eða fötlun. Ég treysti Samfylkingunni best til þeirra verka. Höfundur er námsmaður, búsettur í Kópavogi og situr í miðstjórn ungs jafnaðarfólks og í stjórn Katrínar, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar í Kraganum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar