Handbolti

Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Andrea Jacobsen var markahæst Íslendinganna í dag.
Andrea Jacobsen var markahæst Íslendinganna í dag. Sven Hoppe/picture alliance via Getty Images

Íslendingalið Blomberg-Lippe vann dramatískan eins marks sigur á liði Flames í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Sigurmarkið kom á lokasekúndunni.

Blomberg-Lippe var með undirtökin lengst af leik dagsins en hann var þó jafn og erfitt reyndist að slíta heimakonur í Flames frá sér.

Mest varð munurinn fjögur mörk snemma í síðari hálfleik en heimakonur jöfnuðu og komust svo yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar tíu mínútur voru eftir, í stöðunni 24-23.

Blomberg-Lippe svaraði. Andrea Jacobsen kom liðinu 27-26 yfir þegar þrjár mínútur voru eftir og mark Díönu Daggar Magnúsdóttur í kjölfarið tvöfaldaði forystuna, 28-26.

Flames minnkuðu muninn í eitt mark þegar tvær mínútur voru eftir og spennan mikil. Ninu Engel tókst að jafna af vítalínunni þegar 20 sekúndur lifðu leiks.

Blomberg stillti upp í lokasókn og á ótrúlegan hátt tókst að vinna sigur þökk sé flautumarki Nieke Kuhne.

Andrea Jacobsen skoraði þrjú og lagði upp þrjú, Díana Dögg skoraði tvö og lagði upp þrjú og þá var Elín Rósa Magnúsdóttir með eitt mark og eina stoðsendingu.

Sigurinn er afar mikilvægur fyrir Blomberg-Lippe í toppbaráttunni. Liðið er í öðru sæti, þremur stigum frá toppliði Dortmund, en á leik inni og getur því minnkað bilið í eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×