„Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 28. febrúar 2026 11:04 Halla og Karl Bretakonungur í Buckingham-höll. Facebook Karl Bretakonungur setti Höllu Tómasdóttur forseta í nokkuð óþægilega stöðu þegar hún heimsótti Buckingham-höll í nóvember síðastliðnum. Ákveðið hafði verið að engin gjafaskipti færu fram en „Kalli“ eins og hún kallaði hann kom henni á óvart með rauðri gjafaöskju en Halla kom tómhent til Bretlands.
Hún segir frá því í Bakaríinu í morgun að henni hafi þótt þetta frekar pínlegt en að hún hafi ekki dáið ráðalaus og fundið gjöf handa konunginum við heimkomuna sem af þakkarbréfi og ummælum starfsfólks hallarinnar að dæma vakti mikla gleði. „Það var ákveðið fyrir fram að það yrðu ekki gjafaskipti. Það er alltaf ákveðið fyrir fram. Svo gerist það þegar ég er að kveðja og þá er hann með rauðan kassa fyrir mig. Og ég er ekki með neitt, mjög vandræðalegt,“ segir hún. Í kassanum var árituð mynd af konunginum og Kamillu drottningu en í heimsóknum sem þessum tíðkast að skiptast á slíkum myndum. Halla segir myndina nú prýða flygilinn á Bessastöðum. „Ég varð að vera svolítið sniðug. Ég varð að finna einhverja gjöf þegar ég kom heim. Ég komst að því að það var til aðventudagatal með einni flugu fyrir hvern dag í desember. Þetta sendi ég honum og ég fékk svo fallegt þakkarbréf með auðvitað boði um að koma einu sinni enn og renna fyrir laxi á Íslandi. Eigum við ekki að sjá hvort við fáum Kalla í heimsókn,“ segir hún. „Það kom fram í fallegu þakkarbréfi að þessa gjöf kunni hann vel að meta. Og það fylgdi með frá starfsfólkinu að líklega höfðu þau ekki oft séð gjöf sem gladdi þennan mann svo mikið,“
Karl III Bretakonungur Forseti Íslands Kóngafólk Halla Tómasdóttir Bretland Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Fleiri fréttir Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Sjá meira