Prince Polo, var táknmynd spillingar kommúnismans í Evrópu Júlíus Valsson skrifar 27. febrúar 2026 16:00 Undirrituðum varð það einu sinni á að gefa pólskum vinum mínum í Svíþjóð kassa af Prince Polo, sem ég fékk sendan frá Íslandi. Ég geri það ekki aftur að óathuguðu máli. Ekki eru allir Pólverjar yfir sig hrifnir af þessu annars ágæta kexi, og liggja þar að baki gildar sögulegar ástæður.Saga Prince Polo: Árið 1921 stofnuðu pólsku bræðurnir Brunon og Wilhelm Schramek litla kexverksmiðju í borginni Cieszyn. Kex þeirra náði fljótt miklum vinsældum og varð útbreitt um allt land. Árið 1945 var verksmiðjan yfirtekin og þjóðnýtt af pólska ríkinu, sem þá var stjórnað af kommúnistum, og rekstur hennar færður undir nafnið „Sælgætisverksmiðjan Olza í Cieszyn“ (Cieszyńskie Zakłady Przemysłu Cukierniczego Olza). Framleiðsla Prince Polo hófst hjá þessari ríkisreknu súkkulaðiverksmiðju árið 1955. Verksmiðjan var í ríkiseigu fram í mars 1993, þegar hún var einkavædd, og varð í kjölfarið hluti af alþjóðlegu snakk- og sælgætisfyrirtækinu Mondelez International Inc., sem m.a. á Nabisco, Oreo, Ritz, Côte d'Or, Toblerone og Cadbury. Prince Polo sem tákn spillingar Í kommúnistaríkinu Póllandi voru verslanir oft tómar og vöruskortur tíður. Prince Polo var á þeim tíma ein af fáum pólskum vörum sem stóðu upp úr vegna gæða og bragðs, en sem var um leið ekki aðgengileg almenningi. Betra aðgengi flokksforystu og embættismanna að sambærilegum vörum varð að tákni misréttis sem verkafólk gagnrýndi harðlega. Stjórnvöld notuðu gjarnan hágæða sælgæti og jafnvel kaffi til að reyna að róa óánægða hópa almennings. Þegar verkafólk fékk skyndilega aukaskammt af Prince Polo eða sambærilegum munaðarvörum töldu margir í samtökunum Solidarność að ríkið væri að reyna að „kaupa sér frið“ í stað þess að leysa raunveruleg vandamál þ.e. launamisrétti, öryggi á vinnustöðum og skort á lýðræðislegum réttindum. Samtökin Solidarność, voru stofnuð í Lenin skipasmíðastöðinni í Gdańsk árið 1980 og stóðu í harðri baráttu við kommúnistastjórnina í Póllandi fram til ársins 1989. Leiðtogi samtakanna, rafvirkinn Lech Wałęsa hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1983 vegna baráttu sinnar við kommúnismann og var kjörinn forseti Póllands á tímabilinu 1990 til 1995. Félagar í Solidarność gagnrýndu harðlega á sínum tíma ríkisrekstur Prince Polo verksmiðjanna og misnotkun á súkkulaðikexinu sem mútur og bitlinga til flokksmanna í kommúnistaflokknum, embættismanna og til annarra sérhagsmunahópa sem fengu greiðari aðgang að ýmsum gæðum. Prince Polo var ein af slíkum vörum sem voru auðveldari að fá í ákveðnum ríkisreknum verslunum (t.d. Pewex-verslunum). Solidarność taldi þetta vera skýr merki um kerfisbundið óréttlæti þar sem verkafólkið í verksmiðjum (þar sem kexið var framleidd!) hafði verri aðgang að eigin vörum en ríkisstjórnin og flokkmenn. Prince Polo var uppnefnt sem „sáttatól“ ríkisins. Eitt af því sem vakti sérstaka gremju í Póllandi var að stór hluti framleiðslu Prince Polo var fluttur út, einkum til Íslands, þar sem varan varð mjög vinsæl. Pólverjar spurðu sig: „Hvers vegna höfum við ekki aðgang að því sem við sjálf framleiðum?“ Þetta festi Prince Polo í sessi sem tákn skorts og efnahagslegs óréttlætis í miðstýrðu efnahagskerfi Póllands. Í endurminningum verkamanna í skráðum viðtölum og þjóðfræðiritum er Prince Polo oft nefnt sem táknmynd þessa misréttis. Félagar í Solidarność mótmæltu ekki vörunni sjálfri, heldur því sem hún táknaði: kerfi þar sem fólk sem skapaði verðmætin fékk síður sjálft að njóta þeirra. Pólski vinur minn í Svíþjóð, sem ég nefni í upphafi þessa pistils, var einmitt landflótta félagi í samtökunum Solidarność. Hann leit á Prince Polo kassann sem grófa móðgun. Eftirmáli: Forsætisráðherra Íslands tók nýlega skælbrosandi við einu stykki af súkkulaðikexinu Prince Polo úr hendi núverandi forsætisráðherra Póllands og f.v. forseta Evrópuráðsins, sem um leið hvatti hana til að leiða þjóð sína inn í arma Evrópusambandsins.Margir Pólverjar sem hafa séð þennan gjörning í fréttamiðlum eru nú hugsi. Höfundur er læknir og fullveldissinni ref.https://en.wikipedia.org/wiki/Prince_Polohttps://en.wikipedia.org/wiki/Pewexhttps://en.wikipedia.org/wiki/Solidarity_(Polish_trade_union)https://en.wikipedia.org/wiki/Lech_Wa%C5%82%C4%99sa Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar