Að vera upp á aðra kominn: Hugleiðingar öryrkja Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 11:32 Ég er öryrki og hef verið til 27 ára. Ég tel mig ágætlega kunnuga málefnum öryrkja og ætla því að blanda mér í umræðuna um launavísitölufrumvarpið svokallaða sem nú er til meðferðar á Alþingi. Enn og aftur eru öryrkjar í eldlínunni, að berjast fyrir kjörum sínum, og nú hefur stjórnarmeirihlutinn lagt við hlustir og lagt fram frumvarp til breytingar á lögum um almannatryggingar sem gætu þýtt hugsanlegar kjarabætur fyrir lífeyristaka. Því fagna vitaskuld öryrkjar og aðrir lífeyristakar, en ég hugsi yfir hörkunni í umræðunni og neikvæðum áhrifum hennar á ímynd þeirra. En hvað er að vera öryrki? Í íslenskri nútímaorðabók er orðið ör-yrki skilgreint sem sá sem hefur skerta starfsgetu. Við skulum hafa í huga að öryrkjar eru fatlað fólk og fólk með langvinna sjúkdóma sem gerir það óvinnufært, stundum að hluta, stundum um hríð en stundum alla ævi, það fer eftir eðli fötlunarinnar eða sjúkdómsins. Atvinnulífið hefur hingað til ekki beint sóst eftir vinnuframlagi fatlaðs fólks eða aðlagað sig að þörfum þess. Um það snýst málið líka. A lmannatryggingar, samtryggingarkerfið okkar, á að sjá fólki fyrir framfærslu þegar svo háttar til í lífi þess og á það viljum við treysta. Að framfærslan sé næg svo mannsæmandi sé. Greiðslur eiga að tengjast launavísitölu Loksins er kominn stjórnarmeirihluti sem leggur við hlustir og hefur ákveðið að grípa til aðgerða. Margir þeir sem hafa skilning á stöðu öryrkja í samfélaginu segja launavísitölufrumvarpið réttláta kjarabót. En um hvað snýst deilan? Um er að ræða stöðvun kjaragliðnunar á milli lífeyris almannatrygginga og launa.Frumvarpið kveður á um að tengja lífeyri almannatrygginga við launavísitölu í stað launaþróunar. Þetta er gert til að koma framvegis í veg fyrir slíka gliðnun. Um þetta hefur styrinn staðið síðustu vikur og margir viðrað sína skoðun, bæði með og á móti. Ég er í með-liðinu, skiljanlega. Þegar tveir deila er eðlilegt að sínum augum líti hvor á silfrið. Hvor rekur sína hagsmunabaráttu. Stefnir fjárhag ríkisins ekki í hættu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, sem er hagfræðingur eins og margir þeir sem hafa blandað sér í umræðuna, segir að frumvarpið endurspegli pólitík stjórnarflokkanna. ,,Fólk getur haft misjafnar pólitískar skoðanir. Þetta er okkar forgangsröðun. Við gætum notað fjármagnið í annað. En við viljum gjarna að þessir hópar, öryrkjar og eldri borgarar, sitji ekki eftir þegar aðrir hópar hækka í samfélaginu.“ Annar hagfræðingur, fjármála- og efnahagsráðherrann, Daði Már Kristófersson, tekur undir og segir:„Það er hins vegar þannig að bætur almannatrygginga drógust verulega afturúr. Það var orðinn mikill munur og kjörin mjög léleg.“(RÚV, 10. feb). Aðrir hagfræðingar eins Gylfi Magnússon, hagfræðingur, prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, er á sömu línu og ríkisstjórnin: „Það er ekki nokkur leið að fá það út að þetta stefni fjárhag ríkisins í hættu, upphæðirnar sem um ræðir eru það lágar í samhengi við rekstur ríkisins.” (Visir, 19. feb) Um neikvæða ímynd öryrkja Það er eitt í viðbót sem ég er hugsi yfir og það er ímynd öryrkja. Öryrkjar eru fatlað fólk og langveikt en slikjan yfir orðinu hefur alltaf verið frekar neikvæð. Mér fannst það reyndar hafa lagast aðeins hin síðari ár en í umræðunni undanfarnar vikur hefur sú tilfinning mín ágerst að neikvæðni hafi aukist í garð öryrkja sem og sú skoðun að öryrkjar séu bara húðlatar afætur á kerfinu. Slíkar skoðanir mega ekki festa rætur því að kerfi almannatrygginga á að grípa þá sem eru fatlaðir og langveikir og veita sanngjarna og eðlilega framfærslu. Örorkulífeyrir er stjórnarskrárvarinn réttur þess sem hefur ekki tök á að framfleyta sér og sínum með öðrum hætti. Auðvitað myndu öryrkjar ekki vilja vera upp á aðra komnir sama hvaða nafni kerfið heitir. En stundum verður ekki hjá því komist og við kærum okkur ekki um þá stimplun sem því gæti fylgt.Um samtryggingarkerfið verður að ríkja almenn sátt. Það veit enginn hvenær hann þarf á því að halda. Höfundur er kennari, blaðamaður og öryrki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar