Heilsugæslan tekur við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvar Lovísa Arnardóttir skrifar 26. febrúar 2026 14:56 Verkefnin verða flutt á heilsugæsluna í Árbæ en Heyrnar- og talmeinastöðin hefur verið staðsett þar. island.is Heyrnar- og talmeinastöð Íslands verður lögð niður 1. maí næstkomandi og tekur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins við verkefnum hennar og þjónustuþegum. Heyrnar- og talmeinastöð er nú þegar staðsett í húsnæði heilsugæslunnar í Árbæ og verður þar áfram.
Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar verða starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með sömu ráðningarkjörum og áður samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins. Frumvarp heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur verið samþykkt á Alþingi. Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar eru að jafnaði 25 og er þetta ein minnsta stofnun heilbrigðisráðuneytisins, sett á fót með lögum frá Alþingi árið 1978. Samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins hefur starfsemi Heyrnar- og talmeinastöðvar og fjöldi stöðugilda við stofnunina ekki þróast í takt við aukna eftirspurn eftir heyrnar- og talmeinaþjónustu, heyrnarmælingum og þjónustu vegna heyrnartækja. Þá hafi starfsemi annarra söluaðila heyrnartækja og sjálfstætt starfandi heyrnarfræðinga aukið úrval og bætt aðgengi að þjónustu fyrir heyrnarskerta. Stofnunin ekki lengur meginþjónustuaðili Lögin sem Alþingi hefur samþykkt að fella brott gera hins vegar ráð fyrir því að stofnunin sé meginþjónustuaðili við heyrnarskerta, heyrnarlausa og þá sem eru með heyrnar- og talmein, sem er, samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins, ekki lengur raunin. Þar kemur fram að áætlað sé að 14,3 prósent landsmanna séu með væga til mjög alvarlega heyrnarskerðingu, þar af um tólf þúsund manns með miðlungs til alvarlega heyrnarskerðingu sem krefjist aðkomu sérfræðinga. Auk þess séu skýr tengsl milli hækkandi aldurs og heyrnarskerðingar og því megi gera ráð fyrir að hérlendis muni um 35 þúsund manns þurfa á einhvers konar heyrnarþjónustu að halda árið 2030. Skýrt hver veitir þjónustu Flutningur verkefna Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar til nýrrar einingar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins samhliða niðurlagningu stofnunarinnar felur í sér að heilbrigðisþjónusta sem stofnunin hefur veitt þeim sem glíma við talmein, eru með heyrnarskerðingu eða heyrnarlausir, verður veitt á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu og í samræmi við skilgreiningu fyrsta-, annars- og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu. Heilsugæslustöðvar munu sinna fyrsta stigi þjónustunnar, annars stigs þjónusta skiptist milli sjálfstætt starfandi aðila og nýrrar einingar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og Landspítali mun áfram sjá um þriðja stigs heilbrigðisþjónustu. Þannig verður samkvæmt tilkynningu lögð áhersla á að tryggja aðkomu hins opinbera að þjónustu við einstaklinga með flóknari sjúkdómsmynd og alvarlega heyrnarskerðingu, ásamt þjónustu við þá einstaklinga sem þurfa á ígræðslu eða öðrum heyrnarbætandi aðgerðum að halda.
Eldri borgarar Málefni fatlaðs fólks Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Sjá meira