Pollrólegur yfir stöðunni í Mexíkó Sindri Sverrisson skrifar 25. febrúar 2026 09:00 Gianni Infantino treystir því að mexíkósk yfirvöld tryggi öryggi á HM næsta sumar. Samsett/Getty Þrátt fyrir óeirðirnar sem brutust út í Mexíkó í byrjun vikunnar, sem meðal annars valda því að gríðarleg öryggisgæsla verður á landsleik Íslands og Mexíkó í kvöld, hefur forseti FIFA fulla trú á að Mexíkóum takist vel til með að halda HM í fótbolta í sumar.
Mexíkó mun ásamt Bandaríkjunum og Kanada halda HM í fótbolta í sumar og þá verður einnig spilað um sæti á HM í Mexíkó í lok mars, í umspili sex liða frá fimm heimsálfum. Að minnsta kosti 62 manns hafa látið lífið í tengslum við dauða glæpaforingjans Nemesio Oseguera Cervantes, eða El Mencho, sem mexíkóski herinn skaut til bana á sunnudaginn. Þar af voru 34 meðlimir glæpahrings El Mencho og 25 úr herliðinu, samkvæmt NY Times, auk saksóknara, öryggisvarðar og óléttrar konu sem lenti í miðjum skotbardaga. Skólum og skrifstofum var lokað á þeim svæðum þar sem mestu óeirðirnar brutust út, og ferðamenn héldu sig inni. Óöldin hefur hins vegar ekki komið í veg fyrir landsleik Íslands og Mexíkó, sem hefst klukkan 20 í kvöld að staðartíma eða klukkan 2 í nótt að íslenskum tíma. Og ekki er neitt útlit fyrir áhrif á HM í sumar miðað við orð Gianni Infantino, forseta FIFA, sem ræddi við AS í Kólumbíu í gær: „Nei, ég hef engar áhyggjur. Við fylgjumst náið með því sem er að gerast í Mexíkó. Við erum í sambandi við stjórnvöld, við yfirvöld, og við höfum fulla trú á að allt muni fara vel, bæði umspilið og HM sjálft. Þetta verður veisla,“ sagði Infantino.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Höfuðhöggin á ferlinum valdi vitglöpum Sport Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Fleiri fréttir Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Sjá meira