Ætla að sýna hve ráin hefur hækkað í Bestu deildinni Sindri Sverrisson skrifar 24. febrúar 2026 14:02 Höskuldur Gunnlaugsson hefur spilað átta A-landsleiki en er líka vanur alþjóðlegum verkefnum með Breiðabliki. EPA/MARTIAL TREZZINI Segja má að landsleikur Mexíkó og Íslands aðra nótt verði um leið uppgjör efstu deilda Mexíkó og Íslands, því þaðan koma nánast allir leikmenn landsliðanna að þessu sinni.
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, segir í viðtali við KSÍ að þannig verði spennandi að sjá hvernig leikmenn úr Bestu deildinni standi sig í samanburði við úrvalshóp úr mexíkósku deildinni, af mönnum sem berjast um athygli í von um sæti á HM í sumar. „Það er fyrst og síðast spennandi að sjá hvernig við mátum okkur við svona sterkan keppinaut. Maður vill trúa því að Besta deildin hafi tekið framfaraskref á síðustu árum og þá er flott að fá svona vettvang til að vonandi raungera þá uppskeru, að við séum búnir að hækka rána í íslensku deildinni. Þetta er spennandi leikur,“ sagði Höskuldur. Í viðtalinu er ekkert minnst á óvissuástandið sem ríkir í Mexíkó, eftir miklar óeirðir í kjölfar þess að hersveitir skutu glæpaforingjann „El Mencho“ til bana á sunnudaginn. Svo virðist þó sem að leikurinn muni fara fram, og það án nokkurra takmarkana varðandi fjölda áhorfenda, en hann hefst annað kvöld klukkan 20 að staðartíma eða klukkan 2 um nótt að íslenskum tíma. Höskuldur er spenntur: „Það er búist við pakkfullum velli og þetta er stórþjóð í fótbolta. Þó að þetta sé ekki opinber landsleikjagluggi þá vitum við samt að þeir munu stilla fram ógnarsterku liði. Þannig að þetta er alvöru verkefni og þýðingarmikill leikur fyrir okkur sem erum mættir hér.“ Leikur Mexíkó og Íslands verður í beinni útsendingu á Sýn Sport klukkan 2 aðfaranótt fimmtudags.
Landslið karla í fótbolta Besta deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Fleiri fréttir PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik | Nýliðar með meistara í heimsókn FH - Fram | Komnar á mikið flug Þór/KA - Víkingur | Enn í leit að fyrsta sigrinum Stjarnan - ÍBV | Hörkuleikur í Garðabæ Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Sjá meira