Einum leik frá sögulegum árangri Valur Páll Eiríksson skrifar 24. febrúar 2026 12:46 Bodö getur stigið stórt skref fyrir norskan fótbolta í kvöld. EPA/Lise Aserud Bodö/Glimt frá Noregi getur í kvöld orðið fyrsta norska liðið til að komast í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í 19 ár. Aðeins einu sinni hefur norsku liði tekist það.
Rosenborg er eina norska liðið sem hefur komist upp úr riðlakeppni í útsláttarkeppni í Meistaradeild Evrópu. Liðið skildi AC Milan eftir í riðlakeppninni leiktíðina 1996-97 en þá tóku aðeins 16 lið þátt í keppninni. Juventus beið liðsins í 8-liða úrslitum en þar beið Rosenborg í lægri hlut. Bodö/Glimt náði á ótrúlegan hátt að komast í umspil um sæti í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í ár. Í fyrstu sex leikjum liðsins í deildarhluta keppninnar gerði liðið þrjú 2-2 jafntefli; við Slavia Prag, Tottenham og Dortmund, og tapaði þremur leikjum; fyrir Galatasaray, Mónakó og Juventus. Liðið var því aðeins með þrjú stig fyrir síðustu tvær umferðir deildarkeppninnar og líkurnar nánast engar á áframhaldi í keppninni. Tveir leikir stóðu eftir, gegn stórliðum Manchester City og Atlético Madrid. Bodö lauk keppni í norsku úrvalsdeildinni á svekkjandi máta og þurfti að horfa á eftir norska deildartitlinum í hendur Viking frá Stafangri undir lok árs 2025. Viking endaði með einu stigi meira en Bodö/Glimt. Liðið mætti hins vegar tvíeflt til leiks á nýju ári. Fyrst vannst 3-1 sigur á Manchester City á heimavelli þann 20. janúar og rúmri viku síðar vann liðið 2-1 útisigur á Atlético Madrid í lokaumferð deildarkeppninnar. Niðurstaðan sæti í umspili vegna betri markatölu en Marseille sem sat eftir með sárt ennið. Liðið vann þá 3-1 heimasigur á Inter Milan síðasta miðvikudag og stendur vel að vígi fyrir síðari leik liðanna í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Síðari leikurinn fer fram á San Siro í Mílanó í kvöld. Bodö mætir til leiks hafandi unnið alla þrjá leiki liðsins á árinu 2026; gegn Manchester City, Atlético Madrid og Inter Milan. Strembið verkefni bíður á heimavelli ítalska stórliðsins en Inter þarf hins vegar að skora þrjú mörk, hið minnsta, ætli liðið sér áfram. Inter verður án fyrirliða liðsins og helsta markaskorara liðsins, Lautaro Martínez, sem meiddist í Noregi fyrir viku síðan. Bodö varð í fyrra fyrsta norska liðið til að komast í undanúrslit í Evrópukeppni. Liðið tapaði fyrir Tottenham í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Það skildi aldrei vera að annað sögulegt skref yrði stigið í kvöld. Leikur Inter Milan og Bodö/Glimt hefst klukkan 20:00 og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Norski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira