Sólarpönk, er bjartsýni uppreisn? Diana Sus og Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifa 24. febrúar 2026 16:02 Sólarpönk hugmyndafræðin sprettur upp sem andsvar við heimsendaspám og þeirri orðræðu að mannkynið og jörðin sé óhjákvæmilega á leið í hrun og teiknar í staðinn upp framtíðarsýn þar sem við lifum í sátt við náttúruna og hvert annað. Sólarpönk er valdeflandi og beinir athyglinni að því að manneskjan er skapandi, lífsglöð og ábyrg samfélagsvera sem vill láta gott af sér leiða. Í stað heimssýnar sem byggir á skorti og samkeppni, ótta og reiði, hvetur Sólarpönk okkur til að setja fram og ímynda okkur bjartari heimsmynd þar sem samvinna, gnægð og fegurð eru í forgrunni. Framtíðarsýn sem við viljum geta spegla’ okkur og börnin okkar í. Það er ekki skortur á erfiðum og krefjandi viðfangsefnum í samfélaginu sem brýnt er að við tökumst á við. Fréttir af stríði, ógn, ofbeldi, spillingu, skautun og hamfarahlýnun fylla fréttatíma og samfélagsmiðla. Jákvæðar og bjartsýnar fréttir eru þess eðlis að þær rata ekki eins á forsíðurnar. En hamfarafréttirnar ala á kvíða og varnarviðbragði og gera það að verkum að við forðumst fréttir, fyllumst vanmætti og erum þar af leiðandi ólíklegri til að leysa vandamál á skapandi og kraftmikinn hátt. Jákvætt hugarfar eykur víðsýni og hugmyndaflug. Virkjum ímyndunaraflið, sjáum fyrir okkur heiminn sem við viljum byggja og tökum skref í þá átt. Um miðjan mars fer fram Sólarpönk: Bjartsýnishátíð á Akureyri. Þar verður lögð áhersla á að fjalla um það sem vel er gert í samfélaginu og sagt frá verkefnum sem hafa jákvæð áhrif á fólk og náttúru. Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast Sólarpönki, fara á vinnustofur, listasmiðjur og hlusta á reynslusögur. Fyrirlesarar koma úr ólíkum áttum samfélagsins, menningu og listum, skapandi greinum, nýsköpun, viðskiptalífinu, umhverfis- og grasrótarhreyfingum. Listrænir viðburðir verða samofnir dagskránni og gestum boðið að vera virkir þátttakendur í gegnum samtal og samsköpun. Markmið hátíðarinnar er að kynna Sólarpönk hugmyndafræðina, efla bjartsýni, gleði og von í samfélaginu í gegnum samtal, sköpun og samveru ásamt því að vera mótvægi við neikvæða umræðu, vaxandi kvíða og einmanaleika. Þegar neikvæðni, ógn og tortryggni fylla miðlana má segja að bjartsýni sé orðin það sjaldgæf að hún sé pönk! Höfundar eru Sólarpönkarar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Sólarpönk hugmyndafræðin sprettur upp sem andsvar við heimsendaspám og þeirri orðræðu að mannkynið og jörðin sé óhjákvæmilega á leið í hrun og teiknar í staðinn upp framtíðarsýn þar sem við lifum í sátt við náttúruna og hvert annað. Sólarpönk er valdeflandi og beinir athyglinni að því að manneskjan er skapandi, lífsglöð og ábyrg samfélagsvera sem vill láta gott af sér leiða. Í stað heimssýnar sem byggir á skorti og samkeppni, ótta og reiði, hvetur Sólarpönk okkur til að setja fram og ímynda okkur bjartari heimsmynd þar sem samvinna, gnægð og fegurð eru í forgrunni. Framtíðarsýn sem við viljum geta spegla’ okkur og börnin okkar í. Það er ekki skortur á erfiðum og krefjandi viðfangsefnum í samfélaginu sem brýnt er að við tökumst á við. Fréttir af stríði, ógn, ofbeldi, spillingu, skautun og hamfarahlýnun fylla fréttatíma og samfélagsmiðla. Jákvæðar og bjartsýnar fréttir eru þess eðlis að þær rata ekki eins á forsíðurnar. En hamfarafréttirnar ala á kvíða og varnarviðbragði og gera það að verkum að við forðumst fréttir, fyllumst vanmætti og erum þar af leiðandi ólíklegri til að leysa vandamál á skapandi og kraftmikinn hátt. Jákvætt hugarfar eykur víðsýni og hugmyndaflug. Virkjum ímyndunaraflið, sjáum fyrir okkur heiminn sem við viljum byggja og tökum skref í þá átt. Um miðjan mars fer fram Sólarpönk: Bjartsýnishátíð á Akureyri. Þar verður lögð áhersla á að fjalla um það sem vel er gert í samfélaginu og sagt frá verkefnum sem hafa jákvæð áhrif á fólk og náttúru. Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast Sólarpönki, fara á vinnustofur, listasmiðjur og hlusta á reynslusögur. Fyrirlesarar koma úr ólíkum áttum samfélagsins, menningu og listum, skapandi greinum, nýsköpun, viðskiptalífinu, umhverfis- og grasrótarhreyfingum. Listrænir viðburðir verða samofnir dagskránni og gestum boðið að vera virkir þátttakendur í gegnum samtal og samsköpun. Markmið hátíðarinnar er að kynna Sólarpönk hugmyndafræðina, efla bjartsýni, gleði og von í samfélaginu í gegnum samtal, sköpun og samveru ásamt því að vera mótvægi við neikvæða umræðu, vaxandi kvíða og einmanaleika. Þegar neikvæðni, ógn og tortryggni fylla miðlana má segja að bjartsýni sé orðin það sjaldgæf að hún sé pönk! Höfundar eru Sólarpönkarar.
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar