Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Kjartan Kjartansson skrifar 24. febrúar 2026 11:13 Jón Trausti Sigurðsson, úttgefandi Reykjavík Grapevine og einn stofnenda blaðsins, á viðburði fyrr í þessum mánuði. Vísir Þremur blaðamönnum sem voru fastráðnir á ritstjórn Reykjavík Grapevine var sagt upp störfum í gær. Útgefandi blaðsins segir uppsagnir einu færu leiðina þar sem reksturinn sé í járnum. „
Þetta var ekki ákvörðun sem var tekin af mikilli ánægju heldur var reynt að fresta henni í lengstu lög. Reksturinn hefur verið í járnum síðustu árin og við sáum ekki fram á að við gætum leyft okkur þau forréttindi að vera með vel mannaða ritstjórn í nánustu framtíð,“ segir Jón Trausti Sigurðsson, útgefandi Reykjavík Grapevine. Starfsmennirnir sem voru reknir voru tveir blaðamenn í föstu starfi og hlutastarfsmaður sem hélt utan um menningardagskrá blaðsins. Eftir uppsagnirnar verða fjórir eftir á skrifstofu blaðsins og aðeins tveir sem vinna við skriftir; ritstjórinn Bart Cameron og Jón Trausti sjálfur. Þeir ætla að skrifa meira og leitað verður til lausapenna í auknum mæli til þess að fylla blaðið. Útgáfa Reykjavík Grapevine verður óbreytt og engar aðrar meiriháttar breytingar eru í farvatninu, að sögn Jóns Trausta. Blaðið sé hvorki á leið í rekstrarstöðvun né í gjaldþrot. „Við ætlum að halda áfram að gefa út, vera til og sinna því sem við höfum gert, að fjalla um menningu, ferðaþjónustu og pólitík,“ segir hann. Prent- og launakostnaður aukist Jón Trausti segir að sólin hafi ekki skinið á íslenska fjölmiðlaútgáfu síðustu árin. Uppsagnir hafa verið á öllum helstu einkafjölmiðlum landsins. „Þetta er bara partur af því umhverfi. Þetta er alveg ferlegt og þyngra en tárum taki en þetta er staðan,“ segir útgáfandinn, Prentkostnaður hafi hátt í þrefaldast frá árinu 2019 og launakostnaður, stærsti kostnaðarliðurinn, hafi ekki lækkað heldur. Auglýsingasala hafi nokkurn veginn staðið í stað. Hún sé ekki glimrandi en ásættanleg. Ekki hafi því verið forsendur til þess að reka blaðið áfram með óbreyttri mönnun við núverandi aðstæður. Grapevine var í sömu stöðu eftir efnahagshrunið og segir Jón Trausti að þá hafi fjórar manneskjur rekið blaðið um tveggja ára skeið. Það sé ekki ánægjulegt að fara sömu leið aftur en að hún sé þó fær. „Og vonast síðan til að umhverfið sem við erum í batni að einhverju leyti eða við getum fundið einhverja aðra leið til þess að afla tekna,“ segir hann. Ríkisstyrkur aðeins dropi í hafið Stjórnvöld hafa reynt að koma til móts við rekstrarvanda einkarekinna fjölmiðla síðustu ár með rekstrarstyrkjum. Fröken ehf., útgáfufélag Reykjavík Grapevine, fékk tæpar þrettán milljónir króna í slíkan styrk í fyrra. Til samanburðar voru meðalárslaun á Íslandi rétt rúmar níu milljónir króna árið 2024. Styrkirnir eru tengdir við rekstrarkostnað fjölmiðla. Niðurskurðaraðgerðirnar hjá Grapevine þýða þannig að blaðið getur vænst lægri styrks þegar og ef stjórnvöld ákveða að útdeila slíkum styrkjum á þessu ári en í fyrra. Það ræður þó ekki úrslitum fyrir örlög blaðsins. „Fjölmiðlastyrkurinn, eins ágætur og hann er fyrir bókhaldið, er dropi í hafið,“ segir Jón Trausti. Fröken ehf. skilaði 2,9 milljóna króna hagnaði árið 2024 samkvæmt ársreikningi félagsins en eigið fé þess var neikvætt um tæpar þrettán milljónir króna. Laun og launatengd gjöld útgáfufélagsins námu 65,2 milljónum króna það ár en þau lækkuðu þá um tæpar tuttugu milljónir króna á milli ára.
Fjölmiðlar Ferðaþjónusta Menning Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira