Sló met Íslands en hættir vegna veikinda dóttur sinnar Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2026 12:02 Dick Advocaat náði sögulegum árangri með lið Curacao. Getty/Catherine Ivill Landslið Curacao, sem í sumar bætir met Íslands með því að verða fámennasta þjóðin til að spila á HM karla í fótbolta, er nú allt í einu komið með nýjan þjálfara þegar skammt er í mótið.
Hollendingurinn þrautreyndi Dick Advocaat neyddist til þess að segja starfi sínu lausu, vegna veikinda dóttur sinnar. „Ég hef alltaf sagt að fjölskyldan sé í forgangi gagnvart fótboltanum. Þess vegna er þetta eðlileg ákvörðun. Það breytir því ekki að ég mun sakna Curacao, fólksins þar og samstarfsfólksins mikið,“ sagði Advocaat samkvæmt ESPN. „Ég lít svo á að það hafa stýrt minnstu þjóðinni sem komist hefur inn á HM sé einn af hápunktum ferilsins hjá mér,“ sagði Advocaat. Hægri hönd hans, Cor Pot, og læknirinn Casper van Eyck sögðu einnig starfi sínu lausu en aðrir úr teymi Advocaats munu halda áfram. Hinn 63 ára gamli Fred Rutten er allt í einu á leiðinni á HM.Getty/Patrick Goosen Annar Hollendingur, Fred Rutten, hefur verið ráðinn í stað Advocaats og mun því stýra Curacao á HM. Rutten hefur stýrt liðum Twente, Schalke, PSV Eindhoven, Vitesse, Feyenoord og Anderlecht. Íbúar Curacao eru aðeins um 156.000 talsins en þetta eyríki í Karíbahafi hlaut sjálfstjórn árið 2010 eftir að hafa áður verið hluti af Hollensku Antillaeyjum. Íbúarnir tala hollensku, ensku og „papiamento“. Curacao spilar sinn fyrsta leik á HM þann 14. júní, gegn stórliði Þýskalands, og er einnig í riðli með Ekvador og Fílabeinsströndinni.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Fleiri fréttir Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Sjá meira