Tortryggni er ekki utanríkisstefna Dagbjört Hákonardóttir skrifar 23. febrúar 2026 07:30 Heimsmyndin sem blasti við íslensku þjóðinni sem samþykkti EES-samninginn á tíunda áratugnum er ekki lengur til. Stórveldi heimsins brýna nú fyrir heimsbyggðinni að valdbeitingar á borð við viðskiptaþvinganir og tollmúrar verða óhikað nýttar sem tæki til að byggja veggi milli bandamanna - ekki síst í þeim tilgangi að stilla smáum og meðalstórum þjóðum upp við þá. Aðfangakeðjur sem hingað til hafa þjónað þeim tilgangi að byggja brýr milli líkt þenkjandi þjóða munu mögulega heyra sögunni til, ef ekkert verður að gert. Augu alheims eru á framsæknum, frjálslyndum leiðtogum Evrópu og ekki síður Kanada. Það sama verður ekki sagt um íslenska stjórnarandstöðu sem virðist mátulega lítið upplýst um samtöl leiðtoga á stóru sviði alþjóðastjórnmála og þær áskoranir sem lýðræðisþjóðir heimsins reyna að leysa sín á milli í því skyni að tryggja frið, verja frelsi og ekki síst lýðræðisleg gildi. Tveir slagir, og báðir slæmir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur frá upphafi lagt áherslu á að efnahagslegt öryggi sé hluti af þjóðaröryggi og að því stafi ógn af breyttri heimsmynd. Þess vegna vekur það athygli að allir flokkar stjórnarandstöðunnar hafa í þessum ólgusjó lagt alla sína orku í að gera tvennt tortryggilegt. Annars vegar hvort meirihluta íslensku þjóðarinnar verði veitt vald til að ákveða hvort rétt sé fyrir Ísland að sækja um aðild að Evrópusambandinu og leggja mat á aðildarsamning sem kæmi út úr aðildarviðræðum. Hins vegar er það frumvarpið um Bókun 35 sem felur í sér að ef EES-löggjöf stangast á við önnur lög, gildi þau framar nema Alþingi kveði á um annað. Miðflokkurinn lætur að því liggja að hér verði fullveldi Íslands endanlega framselt, og þótt Sjálfstæðisflokkurinn leggist ekki gegn frumvarpinu er leitað allra færa að sá efasemdafræjum um hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda innan EES-samstarfsins. Nýr formaður Framsóknarflokksins, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, gerði það að sínu fyrsta verkefni eftir kjör sitt að lýsa því yfir að flokkurinn myndi ekki styðja frumvarpið um Bókun 35. Frumvarp sem lagt var fram af hálfu ríkisstjórnar sem flokkurinn hennar skipaði og samþykkti úr sínum röðum. Styðja þau EES-samninginn? Hér talar ráðþrota stjórnarandstaða. Þess vegna verður spyrja hversu mikil raunveruleg innistæða er fyrir yfirlýsingum stjórnarandstöðuleiðtoganna um stuðning við EES-samninginn – mikilvægasta milliríkjasamningi sem Ísland hefur undirritað. Samningi sem gerði það að verkum að Ísland skuldbatt sig til að innleiða evrópskt regluverk á sviði fjórfrelsisins, sem svo hefur skilað okkur fordæmalausum ávinningi og tækifærum fyrir íslensk fyrirtæki og almenning. Þetta veit almenningur sem og hagsmunaaðilar þvert á íslenskt samfélag. Þannig hafa Samtök atvinnulífsins ítrekað í umsögn sinni við frumvarpið um Bókun 35, mikilvægi þess að einsleitni verði tryggð hér á landi og að stjórnvöld, atvinnulíf og almenningur sameinist um varðstöðu um samninginn. Óbreytt ástand er ekki i boði Flokkar sem raunverulega vilja styðja, verja og á sama tíma efla veru Íslands innan EES-samstarfsins, ættu að verja tíma sínum í að tala um kosti þess og þær áskoranir sem við þurfum að leysa á þeim vettvangi. Það fer lítið fyrir slíku í umræðunni, og því síður því hvernig við eflum hagsmunagæslu okkar til að verja virkni EES-samningsins, fari svo að Ísland sæki ekki um aðild að Evrópusambandinu eða ef aðildarviðræður leiða ekki í ljós raunhæfa samningskosti. Það er erfitt að taka mark á slíku tali þegar talað er um Evrópusambandið sem „hnignunarbandalag“ og „eitthvað viðskiptabandalag í Evrópu“, líkt og ónefndir þingmenn sögðu í ræðustól Alþingis þann 22. janúar síðastliðinn. Jarðtenging úr aðeins einni átt Ein rödd innan stjórnarandstöðunnar sker sig þó úr og virðist að svo búnu ein meðvituð um að Ísland yrði á flæðiskeri statt, verði raðirnar með bandamönnum okkar ekki þéttar frekar, utan sem og innan Evrópu. Það er rík ástæða að benda á grein Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur þingmanns sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra í Viðskiptablaðinu 15. febrúar sl. þar sem hún greinir breytta heimsmynd af innsæi og þekkingu undir yfirskriftinni Efnahagslegar landvarnir, og fjallar um áskoranir sem áframhaldandi óskýrleiki um stöðu Íslands í breyttum heimi alþjóðaviðskipta mun leiða af sér. Þingsalur Alþingis endurspeglar ekki þær áherslur sem þar eru dregnar fram um gerbreytta stöðu frjálsra alþjóðaviðskipta, sem er miður. Talsmáti flestra í stjórnarandstöðunni sem gefa sig að framtíð Íslands í Evrópu byggir nefnilega á ódýrri tortryggni gagnvart evrópskum viðsemjendum okkar. Sumir vilja jafnvel benda okkur á að hægt sé að halla sér að öðrum þjóðum, án þess að tilgreina nánar hvað gæti falist í því. Þessi talsmáti hentar þessari ríkisstjórn og þingmönnum í meirihluta alls ekki illa. Við slíkum málflutningi eigum við svör, og nóg af þeim. En hann hentar ekki íslenskum hagsmunum og þjóðaröryggi, sem verður í lok dags að hefja yfir dægurþras. Stjórnarandstöðuflokkarnir þurfa ekki að óttast að verða uppiskroppa með tækifæri til að draga fram pólitískan ágreining við stefnumál ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur á innlendum vettvangi, og það á svo sannarlega líka við um Sjálfstæðisflokkinn. En umræðan í þingsal og hlaðvörpum landsins er kapphlaup á botninn í skeytingarleysi leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna þriggja gagnvart íslenskri hagsmunagæslu. Það er í lok dags verst fyrir Ísland. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagbjört Hákonardóttir Utanríkismál EES-samningurinn Mest lesið Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen Skoðun Skoðun Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvernig verjum við sjálfstæði Íslands til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Staðreyndir og fræðsla um flugmannsstarfið Matthías Arngrímsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar