Máli lífslokalæknis enn ekki lokið – er Ísland réttarríki? Eva Hauksdóttir skrifar 23. febrúar 2026 09:00 Í dag eru liðin fimm ár síðan ég og systkini mín lögðum fram kæru á hendur þrem heilbrigðisstarfsmönnum, vegna meðferðar móður okkar, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir erfiða banalegu, þann 19. október 2019. Kæran var lögð fram í kjölfar þess að embætti landlæknis gaf út álit, þann 17. febrúar 2021, þar sem niðurstaðan er sú að móðir okkar hafi verið sett á ótímabæra lífslokameðferð sem líklega hafi flýtt fyrir andláti hennar. Nánar tiltekið eru lokaorð skýrslunnar þessi: Þá var meðferð DJ frá fyrsta degi síðustu legunnar í eðli sínu samsvarandi lífslokameðferð að eðli og framkvæmd. [...] virðist áhersla meðferðar fyrst og fremst hafa verið á að bæla og slæva og hvers kyns eftirliti með ástandi hennar eða lífsuppihaldandi meðferð hætt. Þetta hafði þær afleiðingar að mati landlæknis að í ellefu vikna langri legu hrakaði DJ; hún var með legusár, næringarskort og sýkingar allt fram til andlátsins, sem verður að telja líklegt að hafi orðið fyrr en ella vegna þeirrar meðferðar sem hún hlaut. Fimm ára bið og læknir í fullu starfi Okkur aðstandendum var birt álit Landlæknis í febrúar 2021. Seinn fréttum við að þá þegar var læknirinn, sem var ábyrgur fyrir meðferð móður okkar, kominn aftur til starfa á Landspítalanum, eftir að hafa verið sviptur starfsleyfi tímabundið. Það var látið heita að hann væri í starfsþjálfun. Hann fékk takmarkað starfsleyfi í maí 2021 og var kominn með ótakmarkað starfsleyfi um mitt ár 2024, þrátt fyrir að mál hans væri enn til rannsóknar hjá lögreglu. Lögreglurannsókn stóð í tæp tvö ár. Gagnvart tveim sakborninga var málið fellt niður hjá lögreglu. Aftur á móti var þáttur læknisins sem ábyrgur var fyrir meðferðinni rannsakaður áfram, ásamt fleiri málum þar sem sami læknir var grunaður um að hafa sett sjúklinga á lífslokameðferð án nægilegs tilefnis. Fyrirspurnum blaðamanna og aðstandenda brotaþola var jafnan svarað á þá leið að málið væri umfangsmikið og ekki hægt að segja til um hvenær rannsókn lyki. Ekki var að sjá að lögreglu þætti ástæða til að hraða rannsókn þótt læknirinn væri í fullu starfi við að taka ákvarðanir um örlög sjúklinga. Málið var sent frá lögreglu til héraðssaksóknara í janúar eða febrúar árið 2023. Þrisvar til fjórum sinnum á ári höfum spurst fyrir um stöðu þess og ástæður fyrir þessum drætti Fyrirspurnum hefur venjulega verið svarað á þá leið ekki sé hægt að segja til um það hvenær tekin verði ákvörðun um hvort gefin verði út ákæra eða ekki, ef fyrirspurnum hefur þá á annað borð verið svarað. Reyndar fékk ég það svar þann 31. mars 2025 að engin rannsókn væri í gangi lengur. Enn hefur þó ekkert frést af afdrifum málsins. Þrátt fyrir að héraðssaksóknari hafi haft málið til meðferðar í þrjú ár, eftir tveggja ára lögreglurannsókn, og þótt héraðssaksóknari hafi lokið sinni athugun á málinu fyrir ári eða svo, hefur sem sagt enn ekki verið ákveðið hvort eigi ákæra. Völdum við því verkefni að reka réttarríki? Það er ömurlegt fyrir þolendur afbrota (eða aðstandendur þeirra ef því er að skipta) að lögreglurannsókn þurfi að taka mörg ár og sýnu verra er að eftir að rannsókn lýkur liggi málin í skúffu árum saman. Fyrir sakborninga er það óbærilegt. Óhóflegur málsmeðferðartími getur reyndar talist mannréttindabrot ef ekki koma fram haldbærar skýringar. Þann 3. febrúar sl. sendi ég Umboðsmanni Alþingis kvörtun vegna málshraða og svarleysis hjá embætti héraðssaksóknara. Þar sem Umboðsmaður hefur djúpan skilning á óralöngum málsmeðferðartíma stjórnvalda, bind ég veikar vonir við að hún geri nokkuð meira en senda héraðssaksóknara fyrirspurn um stöðu málsins og skrifa mér svo bréf, þess efnis að hún sjái ekki ástæðu til að sinna málinu frekar. Það er síður en svo óvenjulegt að lögreglurannsókn og málsmeðferð héraðssaksóknara dragist úr hófi og það á reyndar við um flest stjórnvöld. Skýringarnar á ógnarlöngum málsmeðferðartíma stjórnvalda, hvort heldur er í sakamálum eða öðru, eru venjulega annir hjá embættinu (eða mikill málafjöldi hjá nefndinni) og/eða mannekla og Umboðsmaður tekur því iðulega sem gildri skýringu. Nú efast ég ekki um að mikið álag sé á starfsfólki Héraðssaksóknara og annarra opinberra stofnana og ég hef fulla samúð með því fólki sem var sent heim hálfan dag í viku, í nafni "styttrar vinnuviku" án þess að nokkur annar tæki við þeim verkefnum sem lágu fyrir. Það er auðvitað ekki við starfsmenn að sakast þótt þeir hafi of mikið að gera. En það virðist gleymast að viðunanlegur málsmeðferðartími er ein af grundvallarreglum réttarríkis og að það stendur upp á ríkisstjórn að gera stjórnvöldum mögulegt að sinna hlutverki sínu. Ef íslenska ríkið hefur ekki bolmagn til þess að halda uppi stjórnsýslu sem samræmist grundvallarreglum réttarríkis þá er Ísland ekki réttarríki. Og þá vaknar sú spurning hvort við værum betur sett undir stjórn annarra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Hauksdóttir Mest lesið Halldór 18.04.2026 Halldór Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Sjá meira
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar