Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Kristján Már Unnarsson skrifar 22. febrúar 2026 07:57 Høgni Hoydal rifjaði upp færeysku þjóðsöguna af tröllunum sem mistókst að draga Færeyjar að Íslandi. Flugfélagi Íslands tókst hins vegar að færa þjóðirnar nær hvor annarri með flugsamgöngum sem hófust árið 1963. Egill Aðalsteinsson Færeysk þjóðsaga segir frá tveimur tröllum sem komu frá Íslandi til að reyna að draga Færeyjar til Íslands. En verkið reyndist þeim ofviða og þegar sólin kom upp urðu tröllin að steini og enduðu sem tveir drangar norðan Færeyja.
Söguna sagði Høgni Hoydal, þáverandi utanríkis- og atvinnumálaráðherra Færeyja, við athöfn í flugstöð Vogaflugvallar þegar fagnað var endurkomu Icelandair í Færeyjaflug eftir tuttugu ára hlé vorið 2024. „En Íslendingar hafa dregið okkur saman með því að fljúga yfir hafið. Og þangað til við fáum undirsjávargöng milli Færeyja og Íslands er bara mjög mikilvægt að flugið tengi okkur saman,“ sagði Høgni Hoydal í þættinum Flugþjóðin. Flogið inn Sørvágsfjørð á Dash 8-vél Icelandair. Flugbrautin er í níutíu metra hæð inn af botni fjarðarins. Kristján Jakobsson flugstjóri vinstramegin og Jóhann Atli Hafliðason flugmaður hægramegin.Egill Aðalsteinsson Fram kemur í þættinum að Íslendingar léku lykihlutverk við að byggja upp flugsamgöngur milli Færeyja og umheimsins með flugi Flugfélags Íslands, sem hófst árið 1963. Fyrst var flogið á Douglas Dakota-vélum, þristum, og var flugið í samstarfi við Færeyinga. Ekki var eingöngu flogið milli Reykjavíkur og Færeyja heldur flaug vélin einnig milli Færeyja, Bergen, Kaupmannahafnar og Glasgow áður en haldið var aftur til Reykjavíkur. Varð það upphafið að samfelldum flugsamgöngum milli Færeyja og umheimsins. Kristján Jakobsson var flugstjóri í fyrsta áætlunarflugi Icelandair til Færeyja eftir að félagið tók upp þráðinn á ný eftir tuttugu ára hlé.Egill Aðalsteinsson Frá árinu 2004 hafði færeyska félagið Atlantic Airways eitt annast flug milli Íslands og Færeyja en í samstarfi við Icelandair. Færeyingar sinntu fluginu á 95 sæta farþegaþotum af gerðinni British Aerospace, BAe 146, en frá árinu 2013 á enn stærri þotum, 144 sæta Airbus A319. Þær eru stærstu flugvélar sem nýtt hafa Reykjavíkurflugvöll í reglubundnu áætlunarflugi. Þegar Færeyingar skiptu svo yfir í 180 sæta Airbus A320 þótti þeim flugstöðin í Reykjavík of lítil og flugbrautir of stuttar og fluttu þeir Færeyjaflugið til Keflavíkur haustið 2018. Airbus A319 þotur færeyska flugfélagsins Atlantic Airways eru stærstu flugvélar sem notað hafa Reykjavíkurflugvöll í reglubundnu áætlunarflugi.Egill Aðalsteinsson Aðflugið að Vogaflugvelli, eina flugvelli eyjanna, telst hins vegar enn krefjandi, eins og sjá má úr flugstjórnarklefa Dash 8 Q400-vélar Icelandair. Frammí sitja Kristján Jakobsson flugstjóri og Jóhann Atli Hafliðason flugmaður og það er Jóhann sem annast aðflugið og lendinguna að þessu sinni. Það er bjart yfir Færeyjum og við njótum þess að fylgjast með fluginu inn Sørvágsfjørð. Flugstjórinn hefur auga með að ekki sé flogið of nærri fjöllum, sem til beggja handa skaga upp fyrir flughæð vélarinnar. Vesturendi flugbrautarinnar í Vogum hvílir á stórri jarðvegsfyllingu ofan bæjarins Saurvogs. Austurendinn er einnig á stórri fyllingu.Egill Aðalsteinsson Inni í fjarðarbotni birtist bærinn Sørvágur og þar fyrir ofan, í 90 metra hæð, er flugbrautin. Á lokastefnu þarf að rétta flugvélina af til að hún stefni beint inn á 1.800 metra langa brautina. Aðflugið má sjá í þætti Flugþjóðarinnar um innanlandsflotann. Hér er sjö mínútna kafli: Þetta er fimmtándi þáttur Flugþjóðarinnar. Áskrifendur geta nálgast alla þættina á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Fréttir af flugi Icelandair Færeyjar Reykjavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Síðasta flug til Færeyja frá Reykjavíkurflugvelli Áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Færeyja lauk í dag, 55 árum eftir að flugsamgöngur hófust á milli höfuðborgar Íslands og nánustu frændþjóðar Íslendinga. 26. október 2018 21:15 Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Borgarstjóri Þórshafnar vill bjóða NATO að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum. Hann segir núverandi flugvöll of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar. 14. maí 2024 22:22 Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. 1. maí 2024 23:00 50 ár frá flugslysinu á Mykinesi í Færeyjum Fimmtíu ár eru í dag liðin frá flugslysinu á Mykinesi í Færeyjum þegar Fokker Friendship-vél Flugfélags Íslands rakst á hæsta hluta eyjunnar í aðflugi að flugvellinum í Vogum. Átta manns létust, einn Íslendingur og sjö Færeyingar. 26. september 2020 08:54 Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Sjá meira
Síðasta flug til Færeyja frá Reykjavíkurflugvelli Áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Færeyja lauk í dag, 55 árum eftir að flugsamgöngur hófust á milli höfuðborgar Íslands og nánustu frændþjóðar Íslendinga. 26. október 2018 21:15
Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Borgarstjóri Þórshafnar vill bjóða NATO að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum. Hann segir núverandi flugvöll of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar. 14. maí 2024 22:22
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. 1. maí 2024 23:00
50 ár frá flugslysinu á Mykinesi í Færeyjum Fimmtíu ár eru í dag liðin frá flugslysinu á Mykinesi í Færeyjum þegar Fokker Friendship-vél Flugfélags Íslands rakst á hæsta hluta eyjunnar í aðflugi að flugvellinum í Vogum. Átta manns létust, einn Íslendingur og sjö Færeyingar. 26. september 2020 08:54