Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 22:26 Tilkynnt var um nærri þrjátíu snjóflóð í Tíról á föstudag. Lögreglan í tírólsku Ölpunum Að minnsta kosti fimm létu lífið í snjóflóðum sem féllu víða um austurríska sambandslandið Tíról í dag og í gær. Þung snjókoma og sterkir vindar hafa riðið yfir landshlutann undanfarna daga.
Austurríski ríkismiðillinn Orf segir frá því að á einum mánuði hafi tólf manns látið lífið í snjóflóðum í Tíról. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu urðu fimm skíðamenn- og konur undir 450 metra breiðu snjóflóði sem féll utan skilgreindra skíðaleiða nærri St. Anton am Arlberg síðdegis á föstudag. Upptök flóðsins voru í um tvö þúsund metra hæð. Bandaríkjamaður, Pólverji og Austurríkismaður létust í snjóflóðinu en hinir tveir slösuðust, annar alvarlega. Fjöldi viðbragðsaðila hefur verið kallaður út til björgunaraðgerða vegna flóðanna undanfarna daga, en talið er að um tvö hundruð flóð hafi fallið síðastliðna viku. Tilkynnt hefur verið um tvö mannföll vegna snjóflóða í dag. Fjörutíu og eins árs gamall Austurríkismaður lést í snjóflóði nærri skíðasvæðinu Serfaus fyrr í dag og þá lét 39 ára gamall Svisslendingur lífið í snjóflóði nærri skíðasvæðinu Klösterle. Fjörutíu og tveggja ára gamall Þjóðverji og sextán ára sonur hans urðu undir snjóflóði nærri Nauders-Bergkastel-skíðasvæðinu í gærmorgun. Sonurinn komst lífs af en faðirinn lét lífið. „Snjókoman síðustu daga hefur trekkt mikinn fjölda fólks að fjöllunum, jafnvel utan skilgreindra skíðaleiða,“ sagði Anton Mattle ríkisstjóri Tíról í yfirlýsingu vegna málsins. „Það er hryllilegt að sjá hversu margir hafa í kjölfarið orðið snjóflóðunum að bráð, og ýmist slasast eða týnt lífi.“
Austurríki Náttúruhamfarir Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira