Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2026 22:31 Alysa Liu fagnar hér sigri sínum með Ólympíugullið um hálsinn og bandaríska fánann yfir öxlunum. Getty/Jamie Squire Alysa Liu varð í kvöld Ólympíumeistari í listdansi á skautum og batt þar með enda á tuttugu ára verðlaunaþurrð bandarískra kvenna í þessari grein. Hún varð líka fyrsta bandaríska konan til að vinna Ólympíugull á listskautum í 24 ár.
Eftir æsispennandi keppniskvöld og frábæra keppni skautaði enginn betur en Liu sem hafði verið í þriðja sæti eftir stutta prógrammið. Laufey Lín Jónsdóttir hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið því sú bandaríska dansaði eftir lagi íslensku tónlistarkonunnar í stutta prógramminu en í kvöld notaði hún lag Donnu Summer. Sarah Hughes vann gull árið 2002 en hún var síðasti bandaríski Ólympíumeistarinn í kvennaflokki. Sasha Cohen vann silfur árið 2006 og það var síðasti bandaríski verðlaunahafinn. Liu, sem virtist ekki trúa sínum eigin augum þegar lokastigin voru tilkynnt. Hin japanska Kaori Sakamoto hlaut silfurverðlaunin og Ami Nakai, einnig frá Japan, tók heim bronsið. Bandaríkin og Japan drottnuðu yfir efstu fimm sætunum. Önnur bandarísk kona, Amber Glenn, olli miklum vonbrigðum með þrettánda sæti eftir stutta prógrammið en skilaði frábæru frjálsu prógrammi og endaði að lokum í fimmta sæti. Sextán ára gömul náði Alysa Liu sjötta sæti í Peking fyrir fjórum árum. Hún hætti eftir það en eftir tveggja ára hlé ákvað hún að snúa aftur. Liu er ánægð með það núna. Liu bætist í hóp goðsagnakenndra bandarískra kvenna sem hafa unnið Ólympíugull í listskautum – Tara Lipinski (1998), Kristi Yamaguchi (1992), Dorothy Hamill (1976) og Peggy Fleming (1968) svo nokkrar séu nefndar. Truly a golden moment 🥇#AlysaLiu #FigureSkating #MilanoCortina2026 pic.twitter.com/x6qE8OWWvZ— The Olympic Games (@Olympics) February 19, 2026
Skautaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Öll spjót beinast að Írum og Heimi Fótbolti Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Fótbolti Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Handbolti Mótmæli fyrir utan liðshótel lærisveina Heimis Fótbolti Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Íslenski boltinn „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Íslenski boltinn Steinn orðinn vinsæll eftir að Salah settist á hann Fótbolti Baulað á Luke Littler í Hollandi Sport Maldini ranglega ásakaður um eiturlyfjanotkun Fótbolti Fleiri fréttir Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Öll spjót beinast að Írum og Heimi Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Mótmæli fyrir utan liðshótel lærisveina Heimis Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Dagskráin í dag: Ótrúleg augnablik í NFL-deildinni krufin Steinn orðinn vinsæll eftir að Salah settist á hann Baulað á Luke Littler í Hollandi Prentaði mynd af brotum sem áttu að verðskulda rauð spjöld Maldini ranglega ásakaður um eiturlyfjanotkun Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Stytta keppnir í Formúlu 1 Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku 13 ára sundundur raðar inn verðlaunum og bætir met Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Eiði Smára ekki skemmt Myndaveisla: Stuð og stemning í uppseldu bakgarðshlaupi Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Slagsmál í Vesturbæ og erfið helgi Bjarka Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Veltur ekki bara á Þorleifi að bæta Íslandsmet í bakgarðshlaupi Sjá meira