Friðarráð Eleanor Roosevelt lýsir okkur enn Gunnar Hersveinn skrifar 19. febrúar 2026 16:33 Samþykkið aldrei „friðarráð“ Trumps! Mótmælið kröftuglega öllu sem frá því kemur. Takið ykkur stöðu og sýnið samstöðu. Andspyrna er knúin áfram af mótmælum. Markmið þessa „friðarráðs“ er að leggja undir sig landsvæði, ræna auðlindum og græða peninga, því er sama um manneskjur og mannréttindi. Hverjir eru í ráðinu? Einræðisherrar og einræðissinnaðir vinir formanns ráðsins, Tumps. Látið ekki blekkjast. Til var annað sögufrægt friðarráð sem bar nafn með rentu. Sérstök skrásetning mannréttinda Sameinuðu þjóðanna var ekki gerð fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina, og hún var samþykkt árið 1948. Formaður nefndarinnar og sáttasemjari var Eleanor Roosevelt, sem sætti ólík sjónarmið innan hópsins, hún kallaði yfirlýsinguna Magna Carta alls mannkyns. Hver persóna á að móta hugsjón sína um betri heim án kúgunar, skeytingarleysis og ofbeldis og öðru sem stendur í vegi fyrir réttlæti. Aðeins við, hvert og eitt okkar fyrir sig og saman í bandalagi, getum staðið vörð um samfélagið, stofnanir þess og friðinn. Mótmælið öllum stríðsrekstri og vopnaframleiðslu! Við þekkjum hegðun og hugsun harðstjóranna á 20. öld of vel. Hver einkenni þeirra eru, hvernig þeir taka völdin og hvernig þeir eyðileggja stofnanir, rústa lýðræðisríkjum og drepa fólk. Margir í friðarráði Trumps eiga sér fyrirmyndir úr hópi harðstjóranna á 20. öld og þeir vilja grafa undan stofnunum eins og Sameinuðu þjóðunum. Stéphane Hessel var einn af þeim sem vann með Eleanor Roosevelt að textunum í mannréttindayfirlýsinguna og skrifaði bókina Mótmælið öll! handa okkur. Þar stendur meðal annars „Mótmælið þeim sem hafa ráðist gegn undirstöðunum, skeytingarleysi okkar er versti óvinurinn!“ Aðsend Mótmælið öll! SkrifaðiHessel, mótmælið mannréttindabrotum, mótmælið daglega! Mótmælið því sem ykkur ofbýður! Ekki láta neinn svipta þjóð ykkar sjálfstæði sínu. „Það að andæfa er að neita að sætta sig við niðurlægingu.“ Sjálfur mótmælti hann nasismanum og tók þátt í andspyrnuhreyfingunni í Frakklandi. Tökum undir með Hessel sem var sendur í útrýmingarbúðirnar í Buchenwald árið 1944: „Ég er sannfærður um að friðarmenning, sátt milli ólíkra menningarheima, sé leiðin til framtíðar.“ Við þurfum að læra friðarmenningu og tileinka okkur friðarrelguna: Særið engan. Þá hopar ofbeldið á fæti. Við látum ekki stjórnast af vopnaframleiðendum. Öll börn jarðar eiga rétt til friðar og óspillts umhverfis, við þurfum að verja þann rétt. Innrásir og ofbeldi storka nú heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, því til að mynda íbúar Úkraínu og Palestínu tapa lífi vegna ofbeldismenningar, ef ekki lífi, þá ástvinum, heilsu, vellíðan, landi, tækifærum, jafnrétti, menntun, eigum sínum og öllum friði, öryggi og réttlæti. Ef við og unga kynslóðin ætlar ekki að mótmæla og taka þátt í að móta söguna þá munu harðstjórar í friðarráði Trumps leggja framtíðina í rúst. Tökum undir með Timothy Snyder sagnfræðingi í bókinni Um harðstjórn sem skrifar: „Við erum ekkert viturri en Evrópubúarnir sem horfðu upp á lýðræði láta undan fasisma, nasisma og kommúnisma á tuttugustu öldinni. Við höfum það eina forskot að geta lært af reynslu þeirra.“ Munum að Hannah Arendt heimspekingur skrifaði eftir þinghúsbrunann í Berlín 1933: „Ég var ekki lengur á þeirri skoðun að maður gæti látið sér nægja að vera áhorfandi.“ Hún tók afstöðu og tengdi nafn sitt og kraft við mennskuna. Það nægir ekki að sitja hjá, það hefur ekkert gildi. Mótmælið öll! Sextánda heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna er Friður og réttlæti: „Að stuðla að friðsælum og sjálfbærum samfélögum fyrir alla jarðarbúa, tryggja öllum jafnan aðgang að réttarkerfi og byggja upp skilvirkar og ábyrgar stofnanir á öllum sviðum“. Vinnum að því! Stöndum með okkar stofnunum Hugsum um friðarráð Eleanor Roosvelt og berum það saman við „friðarráð“ Trumps. Hennar ráð fullyrti að hver manneskja sé borin frjáls og jöfn öðrum að virðingu og réttindum. „Friðarráð“ Trumps vegur og metur fólk eftir stöðu, búsetu, húðlit, kyni og eignum. Það er skipað eldri ríkum hvítum valdakörlum. Eitt af því sem þetta einsleita „friðarráð“ mun standa fyrir er að grafa undan stofnunum okkar eins og Sameinuðu þjóðunum sem vinna í anda fjölbreytileikans. Stofnanir vernda sig ekki sjálfar – við þurfum að standa með þeim. Það tók nasista eitt ár að koma á nýrri skipan í Þýskalandi. Friðarráð Trumps getur kveikt ófriðarbál víða um heim á einu ári. Höfnum umsvifalaust öllu sem kemur frá því. Alræðissinnar starfa í skjóli linkindar, hlýðni og forvirkri undanlátssemi annarra ríkisstjórna og borgara. Við vitum nógu mikið til að geta séð fyrir þá illsku sem verk „friðarráðs“ Trumps munu skapa. Við þekkjum brögðin þeirra. Látum ekki blekkjast! Mótmælum öll! Höfundur er rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Hersveinn Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar