Lygin um kynbundið ofbeldi og jafnréttisbrot gegn karlmönnum Huginn Þór Grétarsson skrifar 21. febrúar 2026 07:01 Við heyrum reglulega ranglega fullyrt að ofbeldi sé kynbundið. Fremst í flokki fara kvennahreyfingar en stjórnvöld og lögregla taka þátt í þessum áróðri. Meira að segja dómsmálaráðherra er að endurtaka þessi ósannindi og hefur svo að leiðarljósi við mótun stefnu og laga. Það virðist gilda hér, að endurtaka lygina nógu oft svo hún hljómi eins og sannleikur. Rangar staðalímyndir Rangar staðalímyndir af kynjunum eru skaðlegar. Með því að draga upp þá mynd að konur séu helst þolendur og karlmenn helst gerendur eru karlkyns þolendur jaðarsettir. Þeir leita sér því síður aðstoðar ef þeir telja sig vera eina á báti. Síðan lenda þeir iðulega í því að vera ekki trúað, fá jafnvel ekki að leggja fram kæru hjá lögreglu og málum þeirra vísað frá þó brotin séu sönnuð. Þetta veldur því að karlmenn finna fyrir gríðarlegri höfnun og bera harm sinn oftar en ekki í hljóði. Karlahatur í samfélaginu Ein mesta meinsemd í íslensku samfélagi er hvernig orðræða hefur verið niðrandi í garð karlmanna. Það glymur yfir karlmönnum að þeir séu „líklegir nauðgarar“, hluti af nauðganamenningu sem eitthvert feðraveldi hefur alið upp í þeim, og þeir séu orsök þess að konur séu kúgaðar. Hrópað er upp: „Fuck feðraveldið“, „hvítir miðaldra karlar“, „kúgarar“ og lygin um að ofbeldi sé bundið við annað kynið er endurtekin eins og skammarræða. Þetta hefur skelfilegar afleiðingar fyrir sjálfsmynd ungra drengja og karlmanna. Og þetta ber merki um hatur og reiði í garð karla. Sem betur fer er samfélagið að fá nóg af svona níðtali, en aldrei myndi svona sóðaskapur líðast gegn konum í opinberri orðræðu. Karlmönnum víða mismunað í samfélaginu Það eru ekki bara dregnar upp rangar staðalímyndir af ofbeldi og talað niðrandi til karlmanna í íslensku samfélagi. Karlmenn sæta líka víða mismunun. Karlkyns þolendur ofbeldis njóta ekki sömu úrræða og konur. Fjármagni er ekki veitt í stuðning til handa þeim, á þeirra forsendum, á meðan hundruð milljóna fara í að styðja við kvenkyns þolendur. Karlahreyfingar eru fjársveltar og geta ekki gætt hagsmuna karlmanna. Nánast engin réttindagæsla fyrir þeirra hönd er til staðar. Karlkyns þolandi sem reynir að leita upplýsinga og opnar 112.is, neyðarþjónustu lögreglunnar, sér blasa við áróður þar sem nær allar myndir af þolendum eru kvenkyns. Þar er röng og skaðleg staðalímynd dregin upp um að karlmenn þoli ekki ofbeldi. Lögreglan stendur fyrir þessum áróðri. Stærsta réttlætismál hvers einstaklings eru börnin hans. Konur eru yfir 90% lögheimilisforeldra og réttarkerfið hyglar konum í forsjármálum. Engin viðbrögð eru við því þegar karlmenn eru sviptir börnum sínum með brottnámi barna eða tálmunum. Svona mætti lengi halda áfram en ég vísa í fyrri skrif mín varðandi misréttið. Réttarkerfið mismunar karlmönnum, sjá skrif mín varðandi þetta: https://karlaathvarf.is/logbrot-islenskrar-stjornsyslu-og-domstola/ Stjórnsýsla mismunar karlmönnum, sjá fyrri skrif mín varðandi það: https://www.visir.is/g/20252811969d/jafn-rettis-brot-is-lenskra-stjorn-valda Samfélagið er því miður gegnsýrt af lyginni. Staðreyndin er samt sú að ofbeldi er almennt ekki kynbundið. Alveg sama hversu oft áróðurshópurinn endurtekur lygina, þá er hún enn sem áður lygi. Hundruð alþjóðlegra rannsókna staðfesta þetta. Hér fyrir neðan er vísað til samansafns faglegra rannsókna sem staðfesta að kynin verða álíka oft fyrir ofbeldi. Tilvísanir í rannsóknir: 1. Samsafn 15 nýlegra rannsókna leiddi í ljós að karlmenn og konur eru jafn líkleg til að þola líkamlegt ofbeldi á heimili. Meðfylgjandi er tengill á þýdda fréttatilkynningu. 2. PASK (Partner Abuse State of Knowledge) er stærsta samantekt á rannsóknum á makaofbeldi sem gerð hefur verið í heiminum. Hún tók saman yfir 1.700 ritrýndar rannsóknir og sýndi fram á að tölfræðilega er ofbeldi oft jafnt milli kynja þegar horft er til heildarmyndarinnar. 3. Dunedin-rannsóknin. Þetta er ein lengsta og ítarlegasta rannsókn á mönnum sem gerð hefur verið. Hún fylgdi yfir 1000 börnum frá fæðingu árið 1972 fram á fullorðinsár. Í hópnum var jafnvægi á milli kynja þegar kom að því að beita líkamlegu ofbeldi í samböndum. Konur voru jafn líklegar og karlar til að slá, hrinda eða kasta hlutum, sem dæmi. Konur beita oftar líkamlegu ofbeldi í Danmörku Hér að framan hafa verið upptalin einhver bestu gögn sem liggja fyrir um ofbeldi. Fleiri rannsóknir sýna sömu mynd. Faglegar rannsóknir frá Norðurlöndunum sýna sömu niðurstöður, t.d. birtist árið 2018 frétt af rannsókn í Danmörku en þar voru konur ívíð oftar gerendur í líkamlegu heimilisofbeldi. Tengill á fréttina. Ofbeldi ekki bundið við kyn … Það eru ákveðnar tegundir ofbeldis þar sem munar á því hvort karlar eða konur séu frekar þolendur. Til að mynda þola karlar miklu oftar tálmanaofbeldi og opinbert níð, sem dæmi, en slíkt ofbeldi er þó ekki bundið við annað kynið, enda þola konur líka þessar tegundir ofbeldis, þó það sé í minna mæli. Þannig er alrangt að reyna að einskorða umræðuna við ofbeldi gagnvart öðru kyni. Í reynd er það skeytingarleysi gagnvart karlmönnum að lofa sér að halda uppi rangri orðræðu um að ofbeldi sé kynbundið og fjalla svo eingöngu um ofbeldi gagnvart öðru kyninu, konum. Rétt er að taka fram að gögn lögreglu eru ekki gagnleg þegar skal meta heildarumfang ofbeldis. Þau mæla eingöngu hverjir leita sér hjálpar. Gögn lögreglu eru öllu heldur áfellisdómur yfir starfi lögregluembættisins, vegna þess hversu fáir karlmenn treysta sér til að leita aðstoðar þeirra. Stjórnvöld beina allri umræðu að ofbeldi gegn konum – líka þegar á að ræða mál barna Tvær ráðstefnur hafa verið haldnar um ofbeldi gegn börnum síðustu ár, hið minnsta (Landsamráðsfundur 2022 og ráðstefna 5. júní 2025). Íslenskar og erlendar rannsóknir staðfesta að konur beita börn sín oftar ofbeldi en feður. En á þessum innlendu ráðstefnum snerist umræðan frá börnum og yfir í ofbeldi gegn konum, en ekki körlum. Þátttakendur voru dómsmálaráðherra, lögreglan og kvennahreyfingar. Ekki verður séð hvernig fólk með slíkan áróður og rangfærslur geti unnið af fagmennsku gegn ofbeldi. Hér er dönsk frétt frá árinu 2017, varðandi að mæður beiti oftar ofbeldi. Þetta enn og aftur hrekur lygarnar um að feður séu helstu gerendur sbr. orðræðu íslenskra stjórnvalda. Bætum úr og vinnum gegn ofbeldi – óháð kyni Þess er óskað að stjórnvöld og fagaðilar vinni með staðreyndir, ekki rangfærslur sbr. lygina um kynbundið ofbeldi. Stjórnvöld eiga ekki að draga upp skaðlegar staðalímyndir. Að stjórnvöld og lögregla hætti að mismuna kynjunum, í orði og verki. Við hvetjum fjölmiðlanefnd til að hafa eftirlit með því að fjölmiðlar séu ekki að brjóta lög og draga upp rangar staðalímyndir, líkt og verið hefur. Rangar staðalímyndir eru lífshættulegar. Rangt viðmót frá lögreglu, þar sem karlmönnum er mismunað, er lífshættulegt. Hættum að tala um ofbeldi út frá kyni og berjumst gegn ofbeldi óháð kyni. Höfundur er sjálfboðaliði innan Samtaka um Karlaathvarf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar