Ég býð þingmönnum og verkalýðsforkálfum í námsferð Róbert Björnsson skrifar 19. febrúar 2026 08:15 Kæru alþingismenn og verkalýðsforkálfar, Að gefnu tilefni er ykkur er hér með boðið í námsferð til Lúxemborgar á minn prívat kostnað. Í boði er flugfar (economy light), svefnpokapláss í gömlum kastala og flaska af Mósel Crémant árgerð 2022. Dagskráin inniheldur samtöl við innfædda stjórnmálamenn úr öllum flokkum í Stórhertogadæminu, hagfræðinga, aðila frá samtökum atvinnulífsins, verkalýðsleiðtoga sem og venjulegt launafólk og lífeyrisþega. Fyrir þá sem ekki skilja útlensku verður boðið uppá túlkaþjónustu gegn vægu gjaldi. Farið verður yfir verðbólgu- og launaþróun í smáríki í ESB hvar öll laun, hvort sem er hjá hinu opinbera eða í einkageiranum sem og allar almannatryggingar, ellilífeyrir, atvinnuleysis og örorku lífeyrir fylgja verðtryggðri launavísitölu. Útskýrt verður hvaða aðferðum er beitt til þess að skapa stöðugleika og fyrirsjáanleika í ríkisfjármálum og á atvinnumarkaði og af hverju engum Lúxara hefur dottið í hug að boða til verkfalls í 50 ár. Að lokum verður gestum boðið í útsýnisferð með nýju borgarlínunni - sem er að sjálfsögðu gjaldfrjáls líkt og allar almenningssamgöngur í Stórhertogadæminu. Helstu innviðir verða skoðaðir og komið við á bráðamóttökunni og kíkt við í kennslustofu þar sem börnin eru læs á minnst 4 tungumál og oftast 5. Rætt verður við nýútskrifaðan grunnskólakennara með yfir 100 þúsund evrur í árslaun. "Engar patent-lausnir til" segir Geiri seðló. En honum er hérmeð boðið líka. Mennt er máttur! Æskilegt er að þátttakendur hafi lokið grunnskólaprófi og geti lesið sér til gagns á a.m.k. einu tungumáli. Skráning er opin á netfangið robert.bjornsson@gmail.com Höfundur er pólitískur og efnahagslegur flóttamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Kæru alþingismenn og verkalýðsforkálfar, Að gefnu tilefni er ykkur er hér með boðið í námsferð til Lúxemborgar á minn prívat kostnað. Í boði er flugfar (economy light), svefnpokapláss í gömlum kastala og flaska af Mósel Crémant árgerð 2022. Dagskráin inniheldur samtöl við innfædda stjórnmálamenn úr öllum flokkum í Stórhertogadæminu, hagfræðinga, aðila frá samtökum atvinnulífsins, verkalýðsleiðtoga sem og venjulegt launafólk og lífeyrisþega. Fyrir þá sem ekki skilja útlensku verður boðið uppá túlkaþjónustu gegn vægu gjaldi. Farið verður yfir verðbólgu- og launaþróun í smáríki í ESB hvar öll laun, hvort sem er hjá hinu opinbera eða í einkageiranum sem og allar almannatryggingar, ellilífeyrir, atvinnuleysis og örorku lífeyrir fylgja verðtryggðri launavísitölu. Útskýrt verður hvaða aðferðum er beitt til þess að skapa stöðugleika og fyrirsjáanleika í ríkisfjármálum og á atvinnumarkaði og af hverju engum Lúxara hefur dottið í hug að boða til verkfalls í 50 ár. Að lokum verður gestum boðið í útsýnisferð með nýju borgarlínunni - sem er að sjálfsögðu gjaldfrjáls líkt og allar almenningssamgöngur í Stórhertogadæminu. Helstu innviðir verða skoðaðir og komið við á bráðamóttökunni og kíkt við í kennslustofu þar sem börnin eru læs á minnst 4 tungumál og oftast 5. Rætt verður við nýútskrifaðan grunnskólakennara með yfir 100 þúsund evrur í árslaun. "Engar patent-lausnir til" segir Geiri seðló. En honum er hérmeð boðið líka. Mennt er máttur! Æskilegt er að þátttakendur hafi lokið grunnskólaprófi og geti lesið sér til gagns á a.m.k. einu tungumáli. Skráning er opin á netfangið robert.bjornsson@gmail.com Höfundur er pólitískur og efnahagslegur flóttamaður.
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar