Vilt þú vita hvað hönnun í raun þýðir og hvað hún gerir? Sigríður Heimisdóttir skrifar 18. febrúar 2026 10:16 Margir tengja orðið hönnun við fagurfræði og yfirborðskendar útfærslur en það er einungis lítill hluti hönnunar sem fellur undir þá skilgreingu. Bakvið orðið býr nefnilega mun dýpri merking um hvað hönnun í raun þýðir. Upphaflega þýddi orðið „hönnun“ ásetningur, áður en það þýddi útlit. Sú hugmynd, að hönnun snúist um hvernig eitthvað lítur út, kom fram miklu síðar en sú hugmynd að hönnun snúist um huglægar hugmyndir og lausnir. Hönnun er dregið af latneska orðinu „designare“ — sem þýðir „að marka“ eða „að gefa til kynna“. Orðið birtist fyrst á 16.öld, en varð almennt notað í kjölfar heimssýningarinnar á Bretlandi árið 1851. Þá var það notað í skilgreiningum á hönnun þegar áhersla var lögð á huglæga skipulagningu og ásetning frekar en sjónrænt form. Sjónræna merkingin,t.d. skissa, mynstur, fagurfræðilegt form, þróaðist síðar eftir því sem notkunin víkkaði. Það er mjög mikilvægt að þekkja þessa réttu merkingu orðsins því það hefur sjaldan verið eins mikilvægt og nú að efla þá hæfni að hugsa í lausnum í tæknidrifnu samfélagi. Í dag erum við stödd í upphafi fimmtu iðnbyltingarinnar, sem gengur út á að tengja og virkja manneskjuna við allt það magn tækniundra sem flætt hefur yfir mannkynið síðustu áratugi. Með tilkomu gervigreindar og annara tóla þá fara af stað hugsanir um að tæknin muni á vissum tímapunkti taka yfir og við verða þrælar okkar eigin uppfinninga. Það má alveg taka undir að það eru varhugaverðir tímar en það er gríðarlega mikilvægt að þekkja, skilja og skynja hvernig á að takast á við þessar áskoranir því það liggur líka fjöldi tækifæra í þessari stöðu. Skapandi hugsun, tæknilæsi, greinandi hugsun og filtrun upplýsinga er lykilhæfni sem okkur ber að virkja, þróa og hlúa að. Þessi hæfni er talin mikilvæg í nálægri framtíð („World Economic Forum, Future of jobs 2025“) sem leggja ætti meiri áherslu á í námi og starfi. Mannshugurinn er öflugt verkfæri sem hefur óendanlega möguleika á að þroskast og virkjast. Við megum ekki sofna á verðinum og notafæra okkur skyndilausnir – þó svo að það má að sjálfsögðu inn á milli – en við þurfum að nota þær á réttum stöðum, í réttu samhengi og í réttri röð. Hæfnin til þess að greina þarna á milli og finna réttar lausnir þarf að vaxa og dafna á komandi misserum og til þess að það gerist þá þarf að vera til staðar þjálfun og nám sem kennir og eflir hana. Þess vegna þurfum við að fara yfir og endurskoða framboð menntunar svo að það og möguleikar þess haldi í við breyttan heim. Í Háskólanum í Reykjavík verður í boði í haust ný námslína í hönnunar- og vörutæknifræði (BSc). Þar verður áherslan að þjálfa nemendur að vinna markvisst að lausnum með skapandi og gagnrýnni hugsun með skilning á tækni og veita innsýn í allar hliðar hönnunar. Námið er fyrir þau sem hafa áhuga á samtali og tengingu, eru forvitin um hugmyndir og lausnir, líkar við verklegar æfingar og hafa metnað fyrir manneskjulegri framtíðasýn sem tengist tækni, vöruþróun og bættum heimi. Það innifelur þverfaglegt samstarf við aðrar deildir ss. sál- verk- lög- og tölvunarfræði, hvetur til skiptináms til að veita innsýn í aðra heima og inniheldur starfsnám sem þjálfar skilning og tengingar við atvinnulífið. Þetta er kærkomin viðbót við það hönnunarnám sem er nú þegar í boði á Íslandi enda áhugi mikill hjá ungu fólki á hönnunarmenntun því það gerir sér fulla grein fyrir áskorunum framtíðarinnar og breyttri heimsmynd. Það er ábyrgð fyrri kynslóða að bjóða framtíðinni upp á menntun sem hún tengir við og sem undirbýr hana fyrir áskoranir framtíðarinnar. Þessi námslína mun sannarlega leitast við að gera hvoru tveggja. Höfundur er fagstjóri hönnunar- og vöruþróunarnámsleið í tæknifræði í Háskólanum í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tíska og hönnun Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar