Hver á að þrífa? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 09:30 Mengunarmökkurinn hefur varla farið framhjá íbúum höfuðborgarsvæðisins undanfarna daga. Íbúi í Reykjavík gekk svo langt að lýsa ástandinu þannig að hann væri „hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“, og kallaði eftir viðbrögðum þingmanna. Undirrituð brást þegar við kallinu og hefur sent inn tvær fyrirspurnir á Alþingi sem þingmaður Reykvíkinga. Annars vegar til umhverfis- orku- og loftslagsráðherra um hver beri ábyrgð á því að götur í Reykjavík séu þrifnar og rykbundnar til að viðhalda loftgæðum, og um hvort ráðherrann hyggist grípa til aðgerða til að draga úr svifryksmengun í Reykjavík. Hins vegar til barna- og menntamálaráðherra um aðgerðir vegna skertrar útiveru leikskólabarna í Reykjavík vegna svifryksmengunar. Götur í Reykjavík hreinsaðar einu sinni á ári Það er nefnilega rétt sem íbúinn bendir á, það sé ekki óhætt að hleypa viðkvæmum hópum eins og börnum út í svo mikla loftmengun. Svifryksmengun hefur verið slík að hún er langt umfram heilsuverndarmörk. Foreldrar leikskólabarna hafa fengið þær upplýsingar að börnum sé haldið inni dögum saman vegna ástandsins. Þegar loftgæðin í Reykjavík eru óviðunandi dögum saman hljóta böndin að berast að borgarstjórn. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hildur Björnsdóttir, hefur lagt formlega til að Reykjavíkurborg ráðist í götuhreinsanir við fyrsta tækifæri, enda hefur þeim verið ábótavant. Götuhreinsanir eiga auðvitað að vera fastur liður í þjónustu við borgarbúa, en íbúðargötur í Reykjavík eru einungis hreinsaðar einu sinni á ári! Sovétlausnin um að íbúar noti ekki bíla Einhverjir vilja kenna samgönguháttum borgarbúa um vandann. Það er þó vitað mál að borgarbúar þurfa að komast leiðar sinnar og hverjar ferðavenjur þeirra eru. Líka á köldum hægviðrisdögum. Sjálfri finnst mér nærtækast að borgaryfirvöld sinni grunnþjónustu við íbúa sína, enda vitum við að reglubundin hreinsun gatna og rykbinding dregur úr svifryksmengun. Meirihlutinn í Reykjavík hefur hrósað sér fyrir góða fjárhagsstöðu og ekki hafa fjármunir farið í snjómokstur í vetur. Gætum við fengið göturnar hreinsaðar í Reykjavík? Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Loftgæði Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Mengunarmökkurinn hefur varla farið framhjá íbúum höfuðborgarsvæðisins undanfarna daga. Íbúi í Reykjavík gekk svo langt að lýsa ástandinu þannig að hann væri „hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“, og kallaði eftir viðbrögðum þingmanna. Undirrituð brást þegar við kallinu og hefur sent inn tvær fyrirspurnir á Alþingi sem þingmaður Reykvíkinga. Annars vegar til umhverfis- orku- og loftslagsráðherra um hver beri ábyrgð á því að götur í Reykjavík séu þrifnar og rykbundnar til að viðhalda loftgæðum, og um hvort ráðherrann hyggist grípa til aðgerða til að draga úr svifryksmengun í Reykjavík. Hins vegar til barna- og menntamálaráðherra um aðgerðir vegna skertrar útiveru leikskólabarna í Reykjavík vegna svifryksmengunar. Götur í Reykjavík hreinsaðar einu sinni á ári Það er nefnilega rétt sem íbúinn bendir á, það sé ekki óhætt að hleypa viðkvæmum hópum eins og börnum út í svo mikla loftmengun. Svifryksmengun hefur verið slík að hún er langt umfram heilsuverndarmörk. Foreldrar leikskólabarna hafa fengið þær upplýsingar að börnum sé haldið inni dögum saman vegna ástandsins. Þegar loftgæðin í Reykjavík eru óviðunandi dögum saman hljóta böndin að berast að borgarstjórn. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Hildur Björnsdóttir, hefur lagt formlega til að Reykjavíkurborg ráðist í götuhreinsanir við fyrsta tækifæri, enda hefur þeim verið ábótavant. Götuhreinsanir eiga auðvitað að vera fastur liður í þjónustu við borgarbúa, en íbúðargötur í Reykjavík eru einungis hreinsaðar einu sinni á ári! Sovétlausnin um að íbúar noti ekki bíla Einhverjir vilja kenna samgönguháttum borgarbúa um vandann. Það er þó vitað mál að borgarbúar þurfa að komast leiðar sinnar og hverjar ferðavenjur þeirra eru. Líka á köldum hægviðrisdögum. Sjálfri finnst mér nærtækast að borgaryfirvöld sinni grunnþjónustu við íbúa sína, enda vitum við að reglubundin hreinsun gatna og rykbinding dregur úr svifryksmengun. Meirihlutinn í Reykjavík hefur hrósað sér fyrir góða fjárhagsstöðu og ekki hafa fjármunir farið í snjómokstur í vetur. Gætum við fengið göturnar hreinsaðar í Reykjavík? Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar