Þegar heimurinn var ekki í buxnavasanum Björn Leifur Þórisson skrifar 17. febrúar 2026 12:01 Ég er fæddur árið 1969. Sem barn og unglingur heyrði ég stundum um kalda stríðið og mögulega kjarnorkuógn eða stríð. Slíkt gat vakið ótta og kvíða, og ég man eftir ónotatilfinningu þessu tengt. Munurinn þá var þó sá að ónotin voru ekki stöðug. Fréttir komu og fóru. Þegar slökkt var á útvarpinu eða sjónvarpinu tók daglegt líf við aftur. Ég fór út að leika, upp í herbergið mitt eða sökkti mér í eitthvað allt annað. Heimsmálin fylgdu mér ekki hvert fótmál. Í dag er veruleikinn annar, eins og vitað er. Snjallsímar, samfélagsmiðlar og fréttastofur hinna ýmsu miðla færa okkur stöðugt flóð neikvæðra frétta, átaka og ógnarfrásagna. Reiknirit velja það efni sem vekur sterkustu tilfinningarnar, og oftast er það ótti, reiði eða kvíði. Útkoman er skekkt mynd af heiminum, þar sem hið neikvæða virðist allsráðandi, jafnvel þótt það endurspegli ekki daglegt líf flestra. Nýlegar upplýsingar um mikla aukningu alvarlegra símtala til Hjálparsíma Rauða krossins minna okkur á að þetta er ekki abstrakt umræðuefni. Þar hefur orðið veruleg fjölgun samtala vegna kvíða, vanlíðanar og sjálfsvígshugsana, og þróunin virðist ná til fleiri aldurshópa en áður. Þótt orsakir séu margar og flóknar er erfitt að horfa fram hjá því samhengi sem stöðug neysla neikvæðs og ógnandi efnis skapar. En heimurinn er ekki svona í raun. Hann er ekki verri en þegar ég var strákur — á marga mælikvarða er hann betri. Flestir dagar í lífi flestra einkennast ekki af hörmungum, heldur af daglegu lífi sem gengur þokkalega vel: vinnu, námi, samskiptum og umhyggju. Það var svo líka þá. Munurinn liggur fyrst og fremst í því hvernig heimurinn er sýndur og hversu stöðugt sú mynd er endurtekin. Þegar fólk, ekki síst ungt fólk, er stöðugt útsett fyrir neikvæðni án hlés, er afleiðingin sú að kvíði – og oft þunglyndi í framhaldi – magnast upp. Þetta snýst ekki um veikleika, heldur um álag. Mannshugurinn er einfaldlega ekki gerður til að bera þunga heimsins allan daginn, alla daga. Þess vegna er umræðan sem nú fer fram á Íslandi og víðar um að takmarka aðgang barna og ungmenna að samfélagsmiðlum bæði tímabær og mikilvæg. Ekki til að loka augunum fyrir veruleikanum, heldur til að skapa jafnvægi. Að leyfa hlé. Að gefa rými til að gleyma, leika og anda. Við getum valið að skapa rými fyrir jafnvægi. Með því að ræða heiminn af yfirvegun. Með því að kenna að hlé séu ekki flótti, heldur nauðsyn. Með því að styðja umræðu um hóflegri notkun samfélagsmiðla, bæði fyrir börn og okkur sjálf. Ég hef sjálfur, á fullorðinsárum, dregið verulega úr neyslu samfélagsmiðla og frétta sem eru uppfullar af neikvæðni og bölsýni. Ekki af áhugaleysi, heldur af umhyggju – um eigin líðan. Sú ákvörðun hefur minnt mig á það sem ég lærði ómeðvitað í æsku: að stundum þarf heimurinn einfaldlega að vera aðeins fjær. Kannski var ein stærsta gjöf barnæsku minnar sú að heimurinn var stundum langt í burtu. Sú fjarlægð var ekki vanþekking — hún var vernd. Höfundur er atvinnurekandi, faðir og stjórnarmaður í foreldrafélagi Menntaskólans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar