Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. febrúar 2026 13:27 Mikey Madison og hjónin Samantha Quan og Sean Baker með fjórar af fimm Óskarsverðlaunastyttum sem Anora fékk í fyrra. Getty Leikstjórinn Sean Baker, sem hreppti fjögur Óskarsverðlaun fyrir kvikmyndina Anoru í fyrra, hefur loks uppljóstrað um næstu kvikmynd sína. Hún verður tekin upp á Ítalíu og er ástarbréf til kynlífskómedía Ítalíu á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar.
Baker hefur leikstýrt átta kvikmyndum á síðustu 25 árum og fjallar hann nær yfirleitt um fólk sem er utangarðs, oftar en ekki fólk tengt kynlífsverkaiðnaðinum. Myndir hans innihalda gjarnan óreynda leikara, raunsæisleg samtöl og hráan tökustíl. Sjá einnig: Strípibúlluást sem hleypir öllu í háaloft Eftir að Anora (2024), sem fjallaði um ástarævintýri samnefndrar fatafellu, rakaði inn verðlaunum á nær öllum verðlaunahátíðum síðasta árs hefur bransinn beðið eftir fréttum af næstu mynd Baker. Þrátt fyrir tilboð frá öllum helstu stúdíóunum hefur Baker ákveðið að framleiða næstu kvikmynd sína sjálfstætt. Baker er þessa dagana staddur á kvikmyndahátíðinni í Berlín og ræddi þar við Variety um nýjustu stuttmynd sína, Sandiwara (2026) með Michelle Yeoh í aðalhlutverki, og næstu skref á ferlinum. Kom þar í ljós að næsta mynd hans verður tekin upp á Ítalíu og að ítalska leikkona Vera Gemma muni leika í henni. Vera Gemma fékk Orizzonti-verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 2022 fyrir leik sinn í myndinni Veru.EPA „Þetta er ástarbréf mitt til ítölsku kynlífskómedía sjöunda og áttunda áratugarins svo ég hef verið að sökkva mér ofan í það. Við viljum taka hana upp í ár,“ sagði Baker við Variety. Ítalska kynlífskómedían, sexy all'italiana á frummálinu, er undirgrein ítölsku gamanmyndarinnar (ít. commedia all'italiana) sem fæddist á sjötta áratug síðasta aldar. Kynlífskómedían einkenndist af mikilli nekt og ærslafengnum gamanleik. Uppgangur greinarinnar tengdist kynlífsbyltingunni sterkum böndum og var laus við samfélagskrítíkina sem einkenndi ítalskar myndir þess tíma. Forvitnilegt verður að sjá hvernig Baker tekst til.
Hollywood Bíó og sjónvarp Ítalía Tengdar fréttir Anora sigurvegari á Óskarnum Kvikmyndin Anora fékk flest verðlaun á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór vestanhafs í nótt. Myndin fékk alls fimm verðlaun og var meðal annars valin besta myndin. Þá varð leikstjóri myndarinnar Sean Baker sá fyrsti til að vinna fern verðlaun fyrir sömu myndina. 3. mars 2025 05:57 Anora hlaut Gullpálmann í ár Kvikmyndin Anora undir leikstjórn Sean Baker hlaut Gullpálmann á kvikmyndahatíðinni í Cannes í gær. Myndin er gríndrama sem fjallar um unga fatafellu í New York sem á í ástarsambandi við son rússnesks auðjöfurs. 26. maí 2024 12:06 Mest lesið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Gagnrýni Stórum hluta kærunnar vísað frá Lífið Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Lífið „Enginn skömm af því að leita sér hjálpar“ Lífið Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Lífið samstarf Fleiri fréttir Hugmyndir að hámhorfi um páskana Hera verður ástkona JFK Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter Colbert skrifar handrit nýrrar myndar úr Hringadróttinssögu Stjarna úr Married at First Sight látin Chuck Norris er látinn Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Chuck Norris lagður inn á spítala Spacey sleppur við dómsalinn með sátt við þrjá menn Senn kemur Zendaya: Sturlaðar stiklur fyrir Dune III og Köngulóarmanninn Færðu Penn Óskar fyrst hann missti af hátíðinni Sjöunda jafnteflið á 98 árum Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna One Battle After Another bar sigur úr býtum Hulunni svipt af Taskmaster Hvernig fer Óskarinn? Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Stikla úr Jóhönnu af Örk Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Sjá meira
Anora sigurvegari á Óskarnum Kvikmyndin Anora fékk flest verðlaun á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór vestanhafs í nótt. Myndin fékk alls fimm verðlaun og var meðal annars valin besta myndin. Þá varð leikstjóri myndarinnar Sean Baker sá fyrsti til að vinna fern verðlaun fyrir sömu myndina. 3. mars 2025 05:57
Anora hlaut Gullpálmann í ár Kvikmyndin Anora undir leikstjórn Sean Baker hlaut Gullpálmann á kvikmyndahatíðinni í Cannes í gær. Myndin er gríndrama sem fjallar um unga fatafellu í New York sem á í ástarsambandi við son rússnesks auðjöfurs. 26. maí 2024 12:06