Sjálfseignarbændur eða leiguliðar Kristófer Alex Guðmundsson skrifar 16. febrúar 2026 10:01 Íslenska draumnum má lýsa sem sjálfseignarbónda: eiga sína eigin jörð, uppskera eins og maður sáir, og greiða til fátækra í héraðinu. Tímarnir breytast en markmiðin eru þau sömu: menn vilja eiga sitt eigið heimilið, afla sér atvinnutekna og greiða sanngjarnt hlutfall í sameiginlega sjóði. Íslendingar vilja hvorki drottna yfir öðrum né vera upp á aðra komnir. Þróunin er hins vegar sú að ríkisvaldið (og agentar þess í stofnunum og sveitarfélögum) vill sífellt taka meira til sín. Tíundin er orðin að þriðjungi. Í raun verður hún að helmingi þegar hæfileikar manns eru metnir mest áríðandi á vinnumarkaði, en efsta skattþrepið fer yfir 50% ef talið er með tryggingagjald. Tekjuskattur hjóna er hækkaður í nafni leiðréttingar en virðist aldrei leiðréttur þeim í hag. Leiguskattur er hækkaður í því skyni að minnka hvata til að safna íbúðum en nær bara til einstaklinga með eina eða tvær íbúðir í útleigu en ekki til aðila með fleiri. Ríkið ýtir frá þeim sem reyna að eignast þak yfir höfuðið með því að taka til sín íbúðir á undirverði og veltir verðmismuninum á hina. Holland bætist nú í hóp þjóða sem skattleggja óinnleystan hagnað (e. unrealized gains), sem mun draga úr fjárfestingum í arðbærum verkefnum. Ég óttast að ekki verði langt þar til íslenskir stjórnmálamenn fari að tala fyrir því sama. Markmiðið er ekki lengur að menn geti staðið á eigin fótum og að hluti afrakstursins hjálpi þeim sem minna mega sín. Nú virðist markmiðið í sjálfu sér að gera alla að skjólstæðingum stjórnmálamanna. Uppskriftin er einföld: stjórnmálamennirnir láta sem minnst eftir af sjálfsaflafé manna í þeirra eigin vasa en kalla það „aðhald á tekjuhlið ríkisins.“ Þeir gera menn að leiguliðum en kalla það „óhagnaðardrifið“ og úthluta svo fé til síns „markhóps“ eins og Inga Sæland ráðherra orðar þetta. Hagsmunasamtök taka eftir og koma hver á fætur öðrum í kvöldfréttum og segja að „ríkisstjórnin verði að komast til móts við þennan hóp,“ en það má þýða sem „atkvæði til sölu.“ Á meðan fá þeir sem raunverulega þurfa á stuðningi að halda minni bætur og bíða á lengri biðlistum. Allt er þetta svo fjárhagslega ósjálfbært og þurfa framtíðarkynslóðir að borga skuldasöfnunina. Ísland, og Vesturlönd í heild sinni, þurfa að hverfa frá þessari braut, þar sem litið er á menn sem skjólstæðinga ríkisins. Við þurfum að lækka skatta og ýta undir séreignarstefnuna. Stór og öflug millistétt er best til þess fallin að stýra samfélaginu í rétta átt. Höfundur er sölumaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar