Lilja er Framsókn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 15. febrúar 2026 08:32 Förum aftur til ársins 2016. Ég bjó þá erlendis og stundaði nám í framhaldsskóla. Þrátt fyrir fjarlægðina fylgdist ég með íslenskum stjórnmálum og það fór ekki fram hjá mér þegar ný og öflug rödd steig inn á sviðið: Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Það var strax ljóst að hér var manneskja sem talaði af sannfæringu og hafði kjark til að standa með sínum gildum. Ég fylgdist með henni sem utanríkisráðherra þegar hún tók upp hanskann fyrir íslensku þjóðina og lét í sér heyra gagnvart Gordon Brown vegna beitingar hryðjuverkalaga gegn Íslandi eftir bankahrunið 2008. Þar sá ég leiðtoga sem var tilbúinn að standa upp fyrir hagsmunum Íslands. Síðar fylgdist ég með henni í menntamálaráðuneytinu nálgast málaflokkinn af virðingu fyrir kennurum og nemendum, með skýra sýn á að bæta bæði námsárangur og líðan barna. Hún beitti sér fyrir betra námslánakerfi, styrkti iðnnám og vann að því að fjölga kennurum. Allt með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Lilju þarf ekki að kynna fyrir Framsóknarfólki og ekki þarf að kynna Framsóknarflokkinn fyrir Lilju. Hún þekkir sögu hans, stefnu og grunngildi. Hún hefur verið það lengi í starfi flokksins að sem barn spilaði hún Framsóknarvist við Steingrím Hermannsson. Sumir segja að Lilja sé Framsókn, en ég veit að Lilja myndi aldrei samþykkja þá staðhæfingu því hún veit að enginn gerir neitt einn og það er fólkið í flokknum gerir Framsókn að öflugu stjórnmálaafli. Lilja talar ekki aðeins um samvinnu og skynsama miðjustefnu. Stjórnmálatíð hennar endurspeglar einmitt þessi grunngildi Framsóknar: að leita lausna, byggja brýr og vinna að hagsmunum heimilanna og atvinnulífsins. Hún veit að verðmætasköpun er forsenda velferðar og hefur talað skýrt fyrir hagsmunum fjölskyldna og heimila. Hún hefur einnig nálgast umræðu um alþjóðamál og Evrópusambandið af þekkingu og rökfestu, án öfga eins og samvinnustefnan kallar á. Lilja utan stjórnmála Fyrir mér er Lilja ekki aðeins sterkur stjórnmálamaður heldur líka manneskja sem er auðvelt að leita til. Hún er hlý, skemmtileg, vel lesin og úrræðagóð. Hún hlustar á fólk, skilur aðstæður þess og hvetur það áfram. Hún hefur lagt sig fram um að vera í góðum tengslum við grasrót Framsóknar, mætt á viðburði og ræktað tengsl um allt land. Það skiptir máli. Leiðtogi þarf að þekkja fólkið sitt og standa með því. Lilja er líka manneskja sem hrífur fólk með sér. Það sést vel á þeim fjölda fólks sem hefur stutt hana í formannsframboði hennar, án þess að vera sérstaklega beðið um það. Fólk gerir það einfaldlega vegna þess að það trúir á hana og þá forystu sem hún getur veitt Framsókn til framtíðar. Er þingseta forsenda þess að vera formaður? Í dag erum við Framsóknarfólk að kjósa okkur formann til að leiða allan flokkinn inn í næsta Framsóknaráratug. Við erum ekki að kjósa okkur þingflokksformann heldur leiðtoga sem getur leitt áfram allan flokkinn, grasrótina, sveitarstjórnarfólk og þingmenn, og haldið á lofti stefnu Framsóknar. Með fimm manna þingflokk og fylgi sem er botnfrosið er kostur að formaðurinn sé utan þings. Það bætir við sjötta talsmanni flokksins út á við og gefur formanninum svigrúm til að ferðast um landið til að styðja við grasrótina og sveitarstjórnarfólk í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Það er alveg ljóst að Framsókn þarf að ná aftur tengslum við fólkið í landinu og það mun krefjast þess að formaðurinn heimsæki öll sveitarfélög landsins og ræði við eins margt fólk og mögulegt er. Ég treysti engum betur en Lilju í það verkefni. Ég fann það árið 2016 að leiðtogi væri stiginn inn á svið stjórnmálanna. Leiðtogi sem hreif mig með Framsókn og nú fæ ég loksins tækifæri til að kjósa þann leiðtoga sem formann Framsóknar. Valið er skýrt. Lilja Alfreðsdóttir fær mitt atkvæði. Höfundur er borgarfulltrúi Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun