Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Sindri Sverrisson skrifar 14. febrúar 2026 21:32 Stuðningsmenn Leiknis verða mögulega að stuðningsmönnum Breiðholts á næstu misserum. vísir/Anton Aðeins þrjár tillögur liggja fyrir ársþingi Knattspyrnusambands Íslands en ein þeirra snýr að sameiningu Leiknis og ÍR í eitt knattspyrnufélag; Breiðholt.
Eins og fram hefur komið stefna íþróttafélagið Leiknir og knattspyrnudeild ÍR að því að koma nýju sameinuðu félagi, Breiðholti, á koppinn. Það ræðst á aðalfundum Leiknis og ÍR í apríl hvort af þessu verður en ljóst er að málið mun ekki hafa áhrif á fótboltasumarið 2026. En ef knattspyrnufélagið Breiðholt verður að veruleika þarf að ákveða hvernig það kemur inn í staðinn fyrir Leikni og ÍR. Tillagan sem félögin hafa lagt fyrir ársþing KSÍ er sú að Breiðholt muni taka stöðu þess félags sem endar ofar í lok tímabilsins 2026. Að sama skapi felur tillagan í sér að í yngri flokkum taki Breiðholt einnig stöðu þess félags sem endar ofar í hverjum flokki. Þurfa að tilkynna fyrir tíunda nóvember Í umsögn mótanefndar KSÍ er gerð ein athugasemd en hún snýst aðeins um það að stofnfundur nýs félags verði að fara fram tímanlega fyrir 10. nóvember, því það sé lokadagur til að tilkynna um þátttöku liða í meistaraflokki fyrir næsta tímabil. Í tillögu Leiknis og ÍR var talað um að stefnt væri að stofnfundi í síðasta lagi 1. desember 2026 og er ljóst að það yrði of seint. Ársþing KSÍ fer fram á Egilsstöðum í lok þessa mánaðar, þann 28. febrúar.
Íslenski boltinn KSÍ Leiknir Reykjavík ÍR Tengdar fréttir Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Vinna er hafin við stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti og niðurlagningu knattspyrnudeilda ÍR og Leiknis. Stefnt er að því að kynna hugmyndina á aðalfundum félaganna í apríl en núverandi aðalstjórn ÍR er ekki hlynnt breytingunni. 5. febrúar 2026 14:03 Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira
Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Vinna er hafin við stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti og niðurlagningu knattspyrnudeilda ÍR og Leiknis. Stefnt er að því að kynna hugmyndina á aðalfundum félaganna í apríl en núverandi aðalstjórn ÍR er ekki hlynnt breytingunni. 5. febrúar 2026 14:03