Hvar er best að búa? Tækifæri fyrir frambjóðendur í sveitarstjórnarkosningum Hildur Helgadóttir og Margrét Guðjónsdóttir skrifa 13. febrúar 2026 16:02 Það er gömul saga og ný að forsvarsmenn Landspítala veki athygli á yfirfullum spítala sem leiðir til erfiðleika við að uppfylla skyldur hans sem þjóðarsjúkrahús. Ástæðurnar eru margar og reglulega farið yfir þær í fjölmiðlum. Að undanförnu hefur umræðan um úrræðaleysi í vistunarmálum aldraðra verið hávær enda ærin ástæða til en núna bíða 122 einstaklingar inni á Landspítala eftir varanlegri vistun á hjúkrunarheimili. Birtingarmynd þessa er svo örtröð á bráðamóttöku. En það er fleira sem hamlar því að sjúklingar komist á réttan stað í kerfinu. Það dylst engum að langvarandi innviðaskuld í uppbyggingu þjónustu við aldraða hefur bitnað á starfsemi Landspítalans, en því miður hljómar þessi orðræða stundum eins og það sé öldruðu fólki að kenna. Að það sé vandamál að ná þeim háa aldri sem flestir óska sér og heilbrigðiskerfið styður með ráðum og dáð og sífellt fjölbreyttari meðferðarmöguleikum. Það er ekki góð orðræða. Afar okkar og ömmur eiga betra skilið en að verða vandamál á efri árum, um það geta væntanlega allir verið sammála. Þegar kafað er ofan í afar áhugaverða kostnaðarábatagreiningu sem gerð var á vegum verkefnisins “Gott að eldast” árið 2023 þá kemur m.a. í ljós að framlag eldra fólks (67+) í formi útsvars- og skattgreiðslna til ríkis og sveitarfélaga fer hækkandi. Eldra fólkið leggur meira til samfélagsins á meðan yngra fólk (<67) skapar meiri útgjöld innan sveitarfélaga. Því ætti það að vera eftirsóknarvert fyrir sveitarfélög að laða til sín eldra fólk og veita því viðeigandi, lögbundna þjónustu. Það verður best gert með því að samþætta heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu. Sveitarfélög lýsa því gjarnan yfir að þau vilji vera í farabroddi í þjónustu við aldraða. Það er mikilvægt markmið og sannarlega er það svo að ef þau bæta þjónustu við eldra fólk og stuðla þannig að heilbrigðri öldrun, má gera ráð fyrir að tekjur sveitarfélaganna aukist, því fólk vill búa þar sem þjónustan er góð. Nú þegar líður að sveitarstjórnarkosningum, þá keppast frambjóðendur við að greina tækifæri til umbóta. Fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu blasa tækifærin við hvað varðar eldra fólk en það er að bæta þjónustu við eldri borgara með því að samþætta félagsþjónustu og heimahjúkrun. Hér geta Garðabær, Hafnarfjörður og Kópavogur tekið sér Reykjavík og Mosfellsbæ til fyrirmyndar. Þar er ein gátt inn í samþætta þjónustu, einfalt umsóknarferli, hröð afgreiðsla og skynsamleg verkaskipting milli heilbrigðis- og félagsþjónustu. Samþætt heimaþjónusta hraðar afgreiðslu mála, meðal annars á Landspítala þar sem alltof margir bíða eftir þjónustu og úrræðum utan spítalans. Umsóknarferli eftir þessari þjónustu í Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi er flókið og innbyrðis ólíkt og ekki fyrir meðaljóninn að rata í þeim völundarhúsum. Oft vísar önnur þjónustan á hina með tilheyrandi töfum á afgreiðslu. Engin viðurlög eru við því þegar langir biðlistar skapast eftir þjónustu sveitarfélags þó íbúinn sé fastur á spítala sem er afleitt umhverfi fyrir þann sem getur verið heima. Þegar allt er lagt saman; fjöldi starfsmanna á Landspítala sem eyðir ómældum tíma í að finna út hvernig á að sækja um þjónustu, miðla málum milli þjónustuaðila með tilheyrandi töfum og fjöldi aldraðra sem kemst ekki heim af bráðasjúkrahúsi vegna biðlista í félagslega heimaþjónustu þá skiptir verulegu máli að straumlínulaga ferla og samþætta þjónustuna. Frambjóðendur, hér er tækifæri til að beina sjónum að þessum málaflokki og hefja samþættinguna sem allra fyrst og byrja á að gera eina beiðnagátt fyrir þá sem sækja um þjónustuna. Það þarf ekki að finna upp hjólið, það rúllar í Reykjavík og Mosfellsbæ og upplagt að nýta þeirra reynslu og þekkingu. Höfundar eru hjúkrunarfræðingar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar