Atvinnulífið og framtíðin Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 15:31 Menntadagur atvinnulífsins, sjálfbærni og samkeppnishæfni Menntadagur atvinnulífsins er einn mikilvægasti samráðsvettvangur landsins um samspil menntunar og vinnumarkaðar. Þar er athyglinni beint að menntakerfinu, hæfni vinnuaflsins og breytilegu umhverfi atvinnulífsins. Tilgangur dagsins er umfram allt að tengja forsvarsmenn atvinnulífs, menntastofnana og stjórnvalda og ræða hvernig efla megi færni fólks á vinnumarkaði til skemmri og lengri tíma í takt við þarfir atvinnulífsins. Slík þróun verður aðeins til með samtali og samvinnu. Samkeppnishæfni Íslands ræðst í síauknum mæli af hæfni vinnuaflsins. Sjaldan, ef nokkru sinni, hafa breytingar á umhverfi atvinnumála verið jafn hraðar og undanfarin ár. Málefni sjálfbærni eru þar lykilþáttur. Sjálfbærni sem hluti af kjarnastarfsemi Sjálfbærni er orðin órjúfanlegur hluti af rekstri fyrirtækja. Hún snýst ekki eingöngu um umhverfismál heldur einnig um stjórnarhætti, mannréttindi, virðiskeðjur, gagnsæi, áhættustýringu og síðast en ekki síst um fólk. Þessar kröfur hafa bein áhrif á hæfniþarfir atvinnulífsins. Fyrirtæki þurfa starfsfólk og stjórnendur sem skilja viðmið um upplýsingagjöf, geta greint loftslags- og rekstraráhættu og innleitt ábyrga starfshætti í daglegum rekstri. Skortur á slíkri þekkingu hefur áhrif á samkeppnisstöðu fyrirtækja, aðgengi að fjármagni og traust neytenda. Fræðsla og hæfniuppbygging á sviði sjálfbærni eru því ekki hliðarverkefni heldur hluti af undirbúningi atvinnulífs framtíðarinnar. Hæfni og gervigreind Á sama tíma og sjálfbærnikröfur aukast eykst hraði tæknibreytinga ár frá ári. Gervigreind og önnur hröð tækniþróun eru að umbreyta störfum og námsleiðum um allan heim. Samkvæmt rannsóknum hagaðila, sem kynntar voru á Menntadeginum, má gera ráð fyrir að nær 40% af núverandi kjarnahæfni starfsfólks breytist verulega eða verði úrelt fyrir árið 2030. Þessi þróun kallar á breytingu í nálgun frá einni lokaprófgráðu yfir í sífellda og þverlæga hæfniuppbyggingu alla starfsævina. Þetta á bæði við um akademískt nám og iðnnám. Sjálfbærni og tæknilæsi þurfa að þróast samhliða. Fólk þarf að geta unnið með gögn og nýja tækni en jafnframt metið samfélagsleg og umhverfisleg áhrif ákvarðana. Skýrari tenging milli náms og þarfa atvinnulífs Niðurstöður sem kynntar voru á Menntadeginum sýna að fyrirtæki vilja dýpka samstarf við menntakerfið. Jafnframt telja mörg fyrirtæki að færniþörf þeirra sé ekki að fullu mætt. Þetta bendir til þess að styrkja þurfi tengingar milli náms og raunverulegra verkefna og þarfa atvinnulífsins. Sjálfbærni, ábyrgir viðskiptahættir, fjármálalæsi og tæknifærni ættu að vera hluti af grunnfærni á öllum skólastigum. Í grunnskólum þarf að efla STEAM-greinar, gera stærðfræði og lestur að raunverulegum forgangi og tryggja aðgengi að vönduðum og áhugaverðum námsgögnum. Á háskólastigi þarf stefnumótun umfram allt að taka mið af þeirri umbreytingu sem á sér stað í atvinnulífinu. Sjálfbærni, tækniframfarir og ábyrgð eiga að vera rauður þráður í öllum greinum. Þá þarf að auka vægi starfsnáms og verklegrar þjálfunar, ekki sem varaleiða heldur sem farveg til verðmætra starfa. Sú staða að vísa þurfi fólki frá eftirsóttu tækninámi og verklegu námi er ekki sjálfbær. Sameiginleg ábyrgð Ísland er í alþjóðlegri samkeppni um hæft starfsfólk og fjárfestingu. Þau lönd sem ná mestum árangri byggja markvisst brú milli menntakerfisins og atvinnulífsins og leggja áherslu á símenntun alla starfsævina. Markmiðið er að tryggja að einstaklingar hafi þá hæfni sem þarf til að takast á við nýjar áskoranir og að fyrirtæki hafi forsendur til að skapa sjálfbæra verðmætasköpun til lengri tíma. Það krefst samstillts átaks og skýrrar forgangsröðunar. Umfram allt þarf menntakerfið að hlusta á þarfir atvinnulífsins og atvinnulífið að miðla sjónarmiðum sínum um þróun starfshátta og samkeppnishæfni. Samtalið er til alls fyrst. Höfundur er framkvæmdastjóri UN Global Compact Ísland. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar