Innlent

Féll tíu metra við foss á Snæ­fells­nesi

Freyja Þórisdóttir skrifar
Mynd af Vatnaleið af vefsíðu Vegagerðarinnar.
Mynd af Vatnaleið af vefsíðu Vegagerðarinnar. Vegagerðin

Björgunarsveitir á Snæfellsnesi og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kallaðar út vegna slyss á Vatnaleið. Verið er að sækja mann sem féll tíu metra við foss nærri Selvallavatni. 

Ásmundur Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á Vesturlandi segir í samtali við fréttastofu að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út. Læknir fer með þyrlunni. 

Útkallið barst á þriðja tímanum í dag. 

Fréttin hefur verið uppfærð og verður uppfærð frekar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×