Að vera með lausa skrúfu Inga Bryndís Árnadóttir skrifar 12. febrúar 2026 12:46 Hvað þýðir það að vera með lausa skrúfu? Er það ekki bara eitthvað sem gerist hjá klikkuðu fólki? Losnar ekki örugglega bara skrúfa hjá fólki sem upplifðu svo stór áföll einhvern tímann á lífsleiðinni að það bara kemst ekki yfir það… ekki enn allavega. Er það ekki alveg pottþétt að það losnar bara skrúfa hjá fólki sem áttu ótrúlega erfitt í barnæsku? Losnar ekki bara skrúfa hjá einhverjum öðrum en mér – einhverjum sem á alveg ótrúlega bágt? Hvenær losnar skrúfa? Lausar skrúfur geta komið fram á ýmsan hátt í hegðunarmynstrum okkar. Er maður með lausa skrúfu þegar maður öskrar á starfsmann í matvöruverslun? Eða ef maður svínar í umferðinni? Er skrúfa laus ef að maður er að bogna undan álagi í hversdagsleikanum? Eða kannski bara ef maður lifir með svo yfirþyrmandi kvíða eða óendanlegri depurð? Losnar kannski um skrúfur þegar maður fer áfram á hnefanum áratugum saman án þess að díla við neitt einasta áfall sem maður upplifir? Hvað ef maður upplifir sig ólýsanlega einmanna – losnar þá ekki allavega ein lítil skrúfa? Svarið er yfirþyrmandi og óuggandi já, Skrúfurnar geta losnað hjá okkur öllum. Náum við að grípa okkur? Hver eru merkin sem segja okkur að núna sé eitthvað aðeins að losna hjá okkur? Er það þegar við öskrum á börnin okkar? Er það þegar við náum ekki að slökkva á huganum? Eða þegar við getum ekki sofnað á kvöldin? Hvaða hegðun er það í okkar fari sem vísar til þess að það sé einhver skrúfa að losna hjá okkur? Þegar það er búið að vera mikið álag í langan tíma er oft erfitt að ná í sjálfsmeðvitundina. Við höfum kannski keyrt lengi á sjálfsstýringunni og höfum það kannski bara þokkalegt þar alla jafna. Hvað ef við stoppum sjálfstýringuna í smástund og reynum að tengjast við sjálfsvitundina – náum við því alltaf? Er það alltaf gefið að geta lifað í sjálfsvitund? Að lifa í sjálfsvitund er að lifa með ásetningi. Að taka ákvarðanir um eigin heilsu og hamingju, því við erum jú öll bara samansetning af reynslu og ákvörðunum sem við tökum í gegnum lífið. Þurfum við kannski aðeins að gera eitthvað í okkar málum? Ef ekki nú – hvenær? Ef ekki þú – hver þá? Að finna rétta skrúfjárnið Öll höfum við upplifað það að það losni um skrúfu – hvort sem við erum meðvituð um það eða ekki. Hún getur losnað út af svo ótal mörgum ástæðum – ástæðurnar skipta ekki öllu máli. Það sem skiptir máli er að við finnum rétta skrúfjárnið til þess að herða þær aftur. Stundum tekur það okkur smá tíma að finna rétta skrúfjárnið. Stundum tekur það nokkur ár eða alla ævina. Sumir eru vel búnir og eiga nóg af skrúfjárnum tilbúið á reiðum höndum. Aðrir eiga heilt verkfærabelti. Ert þú búin/n að finna skrúfjárnið þitt? Ert þú búin/n að herða lausu skrúfurnar nýlega? Að herða skrúfurnar Til að herða skrúfurnar okkar þurfum við að nota verkfærin sem við eigum eða finna ný. Fyrst og fremst þarf að einbeita sér að því sem maður getur sjálfur gert. Fagfólk getur hjálpað mikið en ekkert gerist ef við gerum ekkert sjálf. Geðrækt er leið til að hlúa að geðheilsunni og er hún til í ýmsum formum. Líkamsrækt, dagbókaskrif, útivera, félagsleg tengsl. Aðal málið er að finna eitthvað sem hentar þér og þinni rútínu. Hvaða skrúfjárn þarft þú til að herða skrúfurnar þínar? Hamingjuábyrgðin Öll berum við ábyrgð á eigin hamingju – þessa klisju þekkjum við vel. Stundum viljum við bera ábyrgð á henni aðeins seinna – ekki í dag, kannski í næstu viku. Kannski þurfum við bara að komast í gegnum þessa viku, þennan mánuð eða þetta tímabil og svo verður allt betra aftur. Þá þarf að skoða allar lausar skrúfur og finna viðeigandi skrúfjárn og herða svo vel á þeim. En hvað ef líkaminn gefst upp áður en þessu erfiða tímabili lýkur? Hvenær ætlum við að gefa okkur tíma til þess hreinlega að líta loksins á farangurinn sem við burðumst með alla daga og bætum í þó hann sé löngu orðinn sprunginn af drasli? Það er aldrei réttur tími. En það er líka alltaf réttur tími. Höfundur er verkefnastjóri Lausu skrúfunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar