Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Ágúst Orri Arnarson skrifar 11. febrúar 2026 22:47 Florentino Perez og Alexander Ceferin, forsetar Real Madrid og UEFA. Harold Cunningham - UEFA/UEFA via Getty Images Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid og evrópska knattspyrnusambandið UEFA hafa komist að samkomulagi og leyst lagalegar deilur sínar um Ofurdeildina.
Deilurnar hafa staðið yfir síðan Evrópudómstóllinn dæmdi Real Madrid í hag árið 2023 og sagði UEFA hafa brotið gegn samkeppnislögum með viðbrögðum sínum við stofnun Ofurdeildarinnar. Síðast í október 2025 fór Real Madrid fram á 4,5 milljarða evra skaðabætur frá UEFA, en eftir viðræður síðustu mánaða kveður við annan tón. The Independent heldur því fram að Nasser Al Khelaifi, forseti PSG og formaður evrópsku félagasamtakanna, hafi verið áhrifamikill í því máli. Í sameiginlegri tilkynningu sem Real Madrid og UEFA sendu frá sér í dag, degi fyrir ársþing UEFA, segir að þau muni vinna saman í þágu evrópskrar félagsliðaknattspyrnu, virða heilindi leiksins og leggja áherslu á langtíma, sjálfbæra, uppbyggingu félaganna og bæta upplifun áhorfenda með aukinni tækninotkun. Þá muni þetta samkomulag, þegar það hefur verið innleitt að fullu, koma til með að leysa allar lagalegar deilur varðandi Ofurdeildina. A22, félagið sem hefur skipulagt Ofurdeildina með Real Madrid, sendi einnig frá sér sömu yfirlýsingu. Eina félagið eftir í baráttunni Real Madrid, Barcelona, Atletico Madrid, AC Milan, Arsenal, Chelsea, Inter, Juventus, Liverpool, Manchester City, Manchester United og Tottenham voru stofnfélög Ofurdeildarinnar árið 2021. Flest þeirra félaga drógu ákvörðun sína hins vegar fljótlega til baka eftir gagnrýnin viðbrögð. Juventus hékk lengi inni en dró sig út árið 2024 og þá voru bara Barcelona og Real Madrid eftir. Barcelona ákvað síðan fyrir síðustu helgi að hætta við og Real Madrid stóð eitt eftir í baráttunni. Vandræðalegt fyrir Real Madrid og Florentino Perez Í umfjöllun The Athletic segir að þetta samkomulag líti klárlega út eins og stórsigur fyrir UEFA, og á sama tíma frekar vandræðaleg endalok fyrir Real Madrid og Ofurdeildina. Erfitt sé að sjá þetta samkomulag sem sigur fyrir Real Madrid, sem fyrir aðeins fáeinum mánuðum fór fram á milljarða skaðabætur. Félagið hafi tapað stríðinu. Forsetinn Florentino Perez er sagður standa í ströngu þessa dagana. Nýlega hafi verið kallað eftir afsögn hans eftir tap gegn Barcelona í spænska ofurbikarnum og brottrekstur þjálfarans Xabi Alonso. Þá hafi breytingar sem Perez kynnti á eignarhaldi félagsins ekki notið góðs hljómgrunns. Auk þess standi Real Madrid í lagalegum deilum vegna stækkunar Santiago Bernabeu leikvangsins.
UEFA Ofurdeildin Spænski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira