Hætti við að panta flug til London og samdi í staðinn til 2028 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2026 10:24 Sandra María Jessen með dóttur sinni eftir einn leik FC Köln á tímabilinu. Getty/Christof Koepsel Sandra María Jessen hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarliðið FC Köln. Íslenski landsliðsframherjinn gekk til liðs við Köln síðasta sumar og hefur síðan þá skorað níu mörk í sautján leikjum fyrir Köln í Bundesligunni og er í hópi markahæstu leikmanna hennar.
FC Köln segir frá þessum gleðifréttum fyrir félagið í miðlum sínum í dag. Sandra María hafði verið orðuð við ensk félög og Köln lék sér með þær fréttir á samfélagsmiðlum sínum. Þar má sjá Söndru vera að panta flug fyrir sig og fjölskyldu sína til London. Hún hættir síðan við og segir: „Ég fer ekki fet.“ View this post on Instagram A post shared by 1. FC Köln Frauen (@fckoeln_frauen) „Sandra María Jessen uppfyllir allar okkar kröfur hvað varðar íþróttalega getu. Frá upphafi tímabils hafa bæði hennar væntingar og okkar verið meira en staðfestar. Með henni gátum við í fyrsta sinn fengið móður í leikmannahópinn okkar, en fyrir okkur var alltaf í forgangi að henni og fjölskyldu hennar liði vel hjá okkur. Þessi jákvæði grunnur endurspeglast einnig í frammistöðu hennar á vellinum. Því var það rökrétt skref fyrir okkur að halda áfram farsælu samstarfi með því að framlengja samninginn snemma,“ sagði Nicole Bender-Rummler, yfirmaður kvennaknattspyrnu og kvennaakademíu FC. „Ég er orðin ástfangin af Köln“ „Ég er hér með svalasta liðinu, besta starfsliðinu og fyrir frábæra stuðningsmenn. FC er eins og stór fjölskylda og ég fékk fullan stuðning frá fyrsta degi. Það gefur mér mjög góða tilfinningu og tækifæri til að skila mínu og gefa til baka. Ég hef allt sem ég þarf hér. Ég gæti ekki verið ánægðari með ákvörðunina um að vera áfram hjá FC. Ég er orðin ástfangin af Köln,“ sagði Sandra María. Sandra María er 31 árs gömul og uppalin á Akureyri. Hún komst snemma í aðallið Þórs/KA og er markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi með 121 mark í 190 leikjum. Sandra varð tvisvar Íslandsmeistari með félaginu og tvisvar markadrottning deildarinnar. Hún hefur leikið 59 landsleiki og skorað sjö mörk. Á Evrópumótinu 2025 í Sviss lék hún í öllum þremur leikjum Íslands. View this post on Instagram A post shared by 1. FC Köln Frauen (@fckoeln_frauen)
Þýski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira