Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Agnar Már Másson skrifar 10. febrúar 2026 15:40 Kexið var í dreifingu í Kosti. Gerber Matvælastofnun hefur innkallað ákveðna tegund af ungbarnakexi eftir að bandarískir miðlar greindu frá því að aðskotahlutir hefðu fundist í kexpökkum þar í landi.
Matvælastofnun (MAST) greinir frá því í tilkynningu að stofnuninni hafi borist upplýsingar um innköllun á Gerber biscuits Arrowroot ungbarnakexi vegna aðskotahluta sem hefðu fundist. Innflytjandi Smartco ehf. hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað vöruna. Neytandi hafi haft samband við heilbrigðiseftirlitið með áhyggjur eftir að hafa lesið um innköllunina á bandarískum miðlum, segir í tilkynningu MAST. Samkvæmt Fox óskaði Gerber eftir því að varan yrði innkölluð vegna tilkynninga um hugsanlega plast- eða pappírsaðskotahluti í vörunni. Framleiðandi kexins er Nestlé S.A. og var það í dreifingu í verslun Kosts að Miðhrauni 2. Fleiri verslanir eru ekki tilgreindar í tilkynningu MAST. Innköllunin á við um allar þær vörur sem hafa „best fyrir“ dagsetningar á tímabilinu 16. október 2026 til 16. desember 2026.
Matvælastofnun Neytendur Innköllun Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira