Samstarf

Bestu ís­lensku vöru­merkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu

Brandr
„Þetta er viðurkenning sem styrkir fyrirtækin bæði inn á við og út á við og sameinar fólk í kringum sterkt vörumerki," segir Íris Mjöll Gylfadóttir framkvæmdastjóri Brandr.
„Þetta er viðurkenning sem styrkir fyrirtækin bæði inn á við og út á við og sameinar fólk í kringum sterkt vörumerki," segir Íris Mjöll Gylfadóttir framkvæmdastjóri Brandr.

Sterk vörumerki snúast ekki bara um útlit eða auglýsingar heldur eru lykilþáttur í rekstri, menningu og samkeppnishæfni fyrirtækja. Bestu íslensku vörumerkin 2025 fá viðurkenningu í Hörpu 19. febrúar en Brandr, vörumerkjastofa hefur staðið fyrir viðburðinum árlega síðan 2020.

Að sögn Írisar Mjallar Gylfadóttur framkvæmdastjóra Brandr er markmiðið að koma mikilvægi vörumerkja skýrar inn í umræðu stjórnenda og atvinnulífs.

Sterk vörumerki eru margfaldari á svo margt gott í rekstri. Þau eiga heima í stjórnarherberginu og eru miklu meira en auglýsing. Þetta er rekstrartæki sem hefur meðal annars áhrif á arðsemi,“ segir Íris.

Faglegt ferli og breið þátttaka

Valferlið byggir á faglegum grunni og er umfangsmikið. Fimmtíu valnefndarfulltrúar koma að verkefninu ár hvert og endurnýjast hópurinn að stórum hluta milli ára. Þar er að finna fólk úr íslensku atvinnulífi og fræðasamfélagi sem tilnefnir fyrirtæki sem þykja hafa skarað fram úr sem vörumerki. Þrjátíu fyrirtæki eru tilnefnd í ár.

Klippa: Þetta einkennir sterkt vörumerki:

Tilnefnd fyrirtæki skila inn ítarlegri vörumerkjakynningu og framkvæma jafnframt brandvísitölurannsókn. Þar fá þau 360 gráðu endurgjöf frá viðskiptavinum um stöðu vörumerkisins, meðal annars aðgreiningu, ímynd, skynjun og hversu vel það talar til markhópa sinna. Fyrirtæki sem taka þátt í flokki vörumerkis vinnustaðar fá einnig ítarlega endurgjöf frá starfsfólki um upplifun, stolt og tengingu við vörumerkið.

Fjölbreyttir flokkar og aukin áhersla á vinnustaðinn

Viðurkenningar eru veittar í fjórum flokkum sem taka annars vegar til einstaklingsmarkaðar og hins vegar fyrirtækjamarkaðar, bæði fyrir fyrirtæki með færri og fleiri en 50 starfsmenn. Þá var í fyrsta sinn í fyrra veitt viðurkenning fyrir vörumerki vinnustaðar, og er nú skipt í tvo stærðarflokka, auk þess sem persónubrand ársins er valinn.

„Einn mikilvægasti markhópur hvers fyrirtækis er starfsfólkið,“ segir Íris Mjöll. Rannsóknir sýni sterkt samband milli ánægju starfsfólks, skýrra gilda og sterks vörumerkis. 

Sterkt vörumerki vinnustaðar getur haft bein áhrif á ráðningar, tryggð og jafnvel launakostnað. Þau kunna að tala til mismunandi markhópa og þekkja sjálfa sig og viðskiptavininn. 

Íris segir greinilega vakningu meðal íslenskra fyrirtækja um mikilvægi vörumerkja í rekstri og eftirsóknarvert sé að komast á blað hjá Brandr.

„Fyrst og fremst er þetta klapp á bakið fyrir vel unnin störf,“ segir Íris. „Þetta er viðurkenning sem styrkir fyrirtækin bæði inn á við og út á við og sameinar fólk í kringum sterkt vörumerki.“

Sterk vörumerki standa frekar af sér mótvind

Sterkt vörumerki skapar skýr hughrif og traust til lengri tíma. Það verður ekki til á einni nóttu heldur byggist meðal annars upp með stöðugleika, þekkingu og skýrri framtíðarsýn. Það borgar sig að horfa vörumerki sem lagntíma fjárfestingum ekki einblína á skamma sigra með auglýsingaherferðum.

Þegar á móti blæs eða samkeppni harðnar myndast ákveðinn verndarhjúpur utan um sterk vörumerki og þau standa mótvind frekar af sér.
Klippa: Hvað einkennir sterk vörumerki?

Viðburður í Kaldalóni með takmörkuðum sætum

Viðurkenningarhátíðin fer fram 19. Febrúar í Kaldalóni í Hörpu. Þar verða erlend erindi, sófaspjall og fulltrúar úr íslensku atvinnulífi. Alls eru 30 fyrirtæki tilnefnd í ár og hefur aðsókn farið vaxandi með hverju árinu. Sætaframboð er takmarkað og nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Brandr.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×