Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. febrúar 2026 16:39 Minnisvarðinn er fullur af blómvöndum, böngsum, kertum og skilaboðum. Harold Cunningham/Getty Images Minnismerki um fórnarlömb eldsvoðans á skemmtistað í Sviss á nýársnótt varð bruna að bráð um stund þegar kviknaði í því út frá kerti í morgun. Slökkvilið var þó fljótt á staðinn og náði að koma í veg fyrir að altjón yrði á minnisvarðanum.
41 létust í eldsvoðanum sem varð á skemmtistaðnum Constellation á nýársnótt í svissneska bænum Crans-Montana þegar kviknaði í lofti á kjallara skemmtistaðarins. 115 slösuðust í brunanum. Minnisvarðanum var komið upp skammt frá skemmtistaðnum en þar er mikill fjöldi blóma, kerta og skilaboða til minningar um fórnarlömbin og tjald til varnar veðri og vindum. Í umfjöllun Guardian um málið segir að yfirvöld telji að kviknað hafi í tjaldinu út frá kertum. Líkt og áður segir var slökkvilið fljótt á vettvang og fór því betur en á horfðist. Segir miðillinn að þannig hafi tekist að bjarga minningarbók við minnisvarðann sem gestir hafi skrifað skilaboð sín í. Yfirvöld telja ekki að kveikt hafi verið í minnisvarðanum. Eldsvoðinn á skemmtistaðnum er enn til rannsóknar hjá yfirvöldum. Eigendur skemmtistaðarins hafa verið ákærðir auk þess sem bæjaryfirvöld sæta rannsókn vegna málsins en fram hefur komið að brunavarnareftirliti hafi ekki verið sinnt sem skyldi á staðnum.
Sviss Eldsvoði á skemmtistað í Sviss á nýársnótt Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira