Handbolti

Sara Dögg með þrettán mörk og 93 prósent skotnýtingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Dögg Hjaltadóttir átti stórleik í sigrinum á Stjörnunni í dag.
Sara Dögg Hjaltadóttir átti stórleik í sigrinum á Stjörnunni í dag. Vísir/Anton

Sara Dögg Hjaltadóttir og félagar hennar í ÍR sóttu tvö stig í Mýrina í Garðabæ í dag í Olís-deild kvenna í handbolta.

ÍR vann þá fjögurra marka sigur á Stjörnunni, 31-27. Eftir sigurinn eru ÍR-konur komnar upp í þriðja sæti deildarinnar.

Enginn lék betur en Sara Dögg sem skoraði þrettán mörk í leiknum og það aðeins úr fjórtán skotum. Sex af mörkum hennar komu úr vítum og þar kom líka eina klikkið.

Sara átti einnig fimm stoðsendingar og fiskaði þrjú af þessum vítum sjálf. Hún kom því að átján mörkum ÍR-liðsins.

Sylvía Sigríður Jónsdóttir og Katrín Tinna Jensdóttir voru síðan báðar með sex mörk.

Sara Katrín Gunnarsdóttir skoraði mest fyrir Stjörnuna eða sjö mörk en þær Inga Maria Roysdottir og Eva Björk Davíðsdóttir voru með sex mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×