Sumt er hægt að verja aðeins einu sinni Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar 7. febrúar 2026 12:15 Kæru systur og bræður, hvar sem þið eruð stödd. Mig langar til að eiga við ykkur einlægt samtal.Hvað er það sem sameinar okkur?Það er landið okkar, Ísland. Stærsta gjöf sem mér hefur hlotnast var að fá að fæðast á Íslandi — í þessu strjálbýla en fallega landi þar sem formæður okkar lifðu aðra og erfiða tíma. Við lifum líka erfiða tíma.Það virðist forsenda lífs — og hlutskipti kvenna — að þrauka erfiða tíma.Það er fyrir þrautseigju og úthald íslenskra kvenna að við tórum hér enn. Ekki vegna þess að formæður okkar hlýddu því sem þeim var sagt.Ekki vegna þess að þær samþykktu þegjandi aðfarir að lífi og landi.Heldur vegna þess að þær gerðu kröfur sem sjálfsagt var að gera. Íslenskar konur lögðu hart að sér að búa í haginn fyrir okkur, dætur sínar og syni.Þær báru samfélagið í brjósti sér, jafnvel þegar samfélagið bar enga virðingu fyrir þeim.Þær elskuðu, misstu og syrgðu — svo við gætum öll staðið hér í dag. Ég er að rifja upp úr hverju við erum gerðar, stelpur. Hvaðan við komum!Við sem erum svo magnaðar! Við sem örkum út í snjóinn með börnin okkar á morgnana, látum regnið dynja á okkur sumarlangt, öskrum upp í rokið, grátum í laugunum svo lítið beri á, vöðum yfir ár og klífum fjöll. Við sem syndum allsberar í söltum sjó og drekkum hvaða meginlandshrút undir borðið ef sá gállinn er á okkur! Við erum landið, stelpur! Við erum sjálf náttúran í öllu sínu veldi! Sprelllifandi kynjaverur — ólíkindatól. Sem gjósum og blásum og rifnum og skjálfum, en erum líka, þegar vel liggur á okkur, eins og skælbrosandi firðir í sól og stillu. Við þurfum nú að rifja upp og sýna hvað í okkur býr þegar óráðsíufólk veður hér uppi.Krafturinn, þrautseigjan, kjafturinn býr í okkur öllum; allt litróf landsins býr í skapgerð okkar og eiginleikum. Þetta eru eiginleikar þeirra sem kunna að bjarga sér og lifa af! Konur eru ekki gestir í náttúrunni.Konur eru sjálf náttúran.Og aðför að náttúrunni er aðför að konum. Líkamar kvenna bera sköpunarhæfni sem er eldri en öll hagfræðilíkön heimsins.Hvort sem við eignum börn eða ekki, erum við fulltrúar lífsins sjálfs. Árið er 2026.Enn geysa stríð. Enn eru gripdeildir stundaðar. Enn eru ungar konur, líkt og frjósöm lönd, skiptimynt í viðskiptum karlmanna.Árið 2026. Það verður alltaf hlutskipti kvenna að stilla til friðar og lifa af þegar karlkynið fer fram úr sér. Á ástum og átökum formæðra okkar við karlkynið byggist öll tilvera okkar, og það er enn hlutverk okkar kvenna að gæta þess sem okkur er heilagast: sjálfs heimilisins — Íslands. Fjallkonan fríð. Að eyðileggja vistkerfi fjarða með laxeldi í opnum sjókvíum er eins og að berja í móðurlíf konunnar, binda hana, eitra fyrir henni, veikja hana, kæfa hana og að endingu drepa. Kunnulegt stef, ekki satt. Til að manneskjur megi dafna verðum við konur að hafa skjól — og land undir fótum okkar. Hvers konar karlmenn leiða konur sínar undir nýlenduherra? Við þykjumst hissa þegar Bandaríkin ágirnast Grænland, en hvað má þá segja um norskt laxagróðamódel og ágirnd í íslenska firði? Hvernig dettur íslenskum karlmönnum í hug að veita slíkum mönnum, íslenskum sem norskum, heimildir til að breyta fjörðunum okkar í iðnaðarpytti? Sparkar maður ekki slíkum mönnum á dyr? Vitanlega verður það hlutskipti okkar kvenna að bera bæði fjárhags- og tilfinningaskaðann þegar spilaborgin hrynur — að lifa af með börnin þegar allt hefur verið tekið. En engin lífsreynd kona lætur drekka sig út á Guð og gaddinn nema einu sinni. Ég bið ykkur: látum ekki grunnhyggna karlmenn taka snúning á okkur eina ferðina enn: Braska með okkar almannafé.Selja lífríki og land fyrir slikk.Byggja sundlaug — sem við eigum að þakka fyrir.Og láta okkur bera óhjákvæmilegan og fyrirsjáanlegan náttúru- og fjárhagsskaða. Ég vona svo innilega að þið finnið það í hjarta ykkar hversu mikilvægt það er að við látum það ekki líðast að enn og aftur sé farið svona með landið okkar og okkur sjálfar. Ég bið alla vel gerða karla á Íslandi að standa einnig vörð um íslenskar konur og íslenska jörð. Nú reynir á ykkur. Íslensk náttúra er íslensk kona.Íslensk náttúra er móðir okkar allra.Sumt er hægt að verja aðeins einu sinni. Höfundur er leikkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Fiskeldi Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar