Forðist eftirlíkingar Berglind Sunna Bragadóttir skrifar 6. febrúar 2026 15:30 Borgarfulltrúi meirihlutans í Reykjavík velti nýverið upp spurningunni hvort við viljum frekar að Reykjavík líkist evrópskum mannlífsborgum eða bandarískum bílaborgum. Ég spyr á móti: Viljum við að Reykjavík verði eftirlíking af annarri borg eða viljum við að hún sé hún sjálf? Hluti af röksemdafærslu borgarfulltrúans fyrir því að líkja í auknum mæli eftir öðrum borgum var að Reykjavík er í samkeppni við borgir nágrannalandanna um fólk, hugvit og fjárfestingar. Sem er rétt, frjálst flæði fjármagns og fólks milli Norðurlanda og ríkja EES þýðir að ef einhver hrífst meira af lífinu í Köben en hér heima þá getur hann söðlað um og flust þangað án of íþyngjandi hamla. Í markaðssetningu er gjarnan farin ein þriggja leiða til að skilja sig frá samkeppninni: að vera betri, ódýrari eða öðruvísi. Getum við keppt við Kaupmannahöfn á þeim forsendum að við öpum upp þeirra hætti en gerum það betur? Íbúar Kaupmannahafnar eru um 668 þúsund talsins og þeir búa á 91 km2 á meðan íbúar Reykjavíkur eru um 139 þúsund á 273 km2. Þessi mjög svo þétta byggð veldur því að styttra er í þjónustu, almenningssamgöngur ganga vel fyrir sig og danskt láglendi og góðviðri hvetur til líflegrar hjólamenningar. Frábært fyrir þau sem hallast að þeim lífstíl sem þetta umhverfi býður upp á. En mig grunar að sjarminn sé aðeins minni á reiðhjóli yfir umtalsvert lengri vegalengdir um holt og hæðir Reykjavíkur með rigningu, sem á einhvern óútskýranlegan máta fellur lárétt, í andlitinu. Ég leyfi mér að segja það ólíklegt að við föngum anda Köben betur en heimamenn. Við getum svo sem reynt að vera ódýr eftirherma af Kaupmannahöfn en það er fjarlægur draumur eins og sakir standa. Við búum fjarri meginlandinu með þeim afleiðingum að matvöruverð hér er 48% yfir meðaltali Evrópusambandsins en 20% yfir sama marki í Danmörku. Þá er verðbólgan hærri hér sem stendur, 5,2% samanborið við 2,1%. Augljósasta leiðin í þessari samkeppni er að vera öðruvísi. Reykjavík er ekki í þeirri stöðu að þurfa að verða annað hvort „evrópsk“ eða „bandarísk“. Hún getur bara verið hún sjálf. Við getum veitt fólki fjölbreytta valkosti um hvernig það kýs að búa og ferðast um. Hverfi sem bjóða þéttari byggð og forgangsraða fótgangandi og hjólandi umferð sem og hverfi með meira rými, stærri garða og stað til þess að leggja fjölskyldubílnum. Það er ekki hlutverk kjörinna fulltrúa að steypa borgarbúum í þröngt mót og takmarka valkosti þeirra heldur að finna leiðir til þess að mæta þörfum þeirra á sem skilvirkastan og hagkvæmastan hátt. Höfundur gefur kost á sér í 3. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar