Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Atli Ísleifsson skrifar 6. febrúar 2026 07:08 Hiti verður á bilinu núll til sjö stig, mildast sunnantil, en kólnar síðdegis. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægum austlægum áttum yfir landinu í dag, en að það verði strekkingur með suðurströndinni.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að skil séu á leið yfir vesturhluta landsins og útlit sé fyrir að þau gangi yfir höfuðborgarsvæðið nú undir morgun með tilheyrandi úrkomu. Hiti verður á bilinu núll til sjö stig, mildast sunnantil, en kólnar síðdegis. „Líklega mun úrkoman að mestu falla sem rigning eða slydda, en þó eru líkur á snjókomu, einkum í efri byggðum. Fljótlega um hádegi fer að stytta upp og léttir þá víða til, en úrkomulítið verður austanlands síðdegis. Um helgina verður norðaustlæg átt með strekkingi eða allhvössum vindi norðvestan- og suðaustantil. Bjart verður að mestu vestanlands, en dálítil él norðan- og austantil. Þá fáum við yfir okkur heldur kaldara loft sem mun að líkindum fylgja okkur inn í næstu viku þegar kólnar enn frekar, og þá einkum norðanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðaustan og austan 5-13 m/s og él, en bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Hiti 0 til 4 stig við ströndina, en um og undir frostmarki norðantil og inn til landsins. Á sunnudag og mánudag: Norðaustan 8-15 m/s, hvassast norðvestantil. Víða él, einkum norðan- og austantil, en úrkomuminna sunnan- og vestantil. Dregur heldur úr frosti. Á þriðjudag: Norðaustanátt og víða dálítil él, en þurrt að mestu suðvestantil. Frost 0 til 6 stig. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt. Bjart með köflum, en dálítil él við Norður- og Austurströndina. Kólnar í veðri, frost 0 til 10 stig, kaldast fyrir norðan.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira