Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Sindri Sverrisson skrifar 5. febrúar 2026 21:08 Alfons Sampsted fagnaði eftir að hafa jafnað metin í 1-1. Getty/Pim Waslander Fyrstu dagar Alfonsar Sampsted hjá Go Ahead Eagles í Hollandi hafa heldur betur verið viðburðaríkir. Hann mátti spila í kvöld þrátt fyrir rautt spjald í síðasta leik og skoraði afar snoturt en óvenjulegt mark.
Framherjinn Stefán Ingi Sigurðarson er nýmættur til Go Ahead Eagles, fyrir metfé frá Sandefjord, en var ekki í leikmannahópnum í bikarleik í kvöld, gegn Telstar. Telstar vann leikinn 2-1 og fer því áfram í undanúrslitin en Go Ahead er úr leik. Alfons var í byrjunarliðinu í kvöld þar sem rauða spjaldið sem hann fékk á sunnudaginn, í frumraun sinni eftir komuna frá Birmingham, veldur aðeins leikbanni í deild en ekki bikar. Alfons nýtti sér það og skoraði eina mark Go Ahead, þegar hann jafnaði metin í 1-1 á 52. mínútu en markið má sjá hér að neðan. Alfons Sampsted blijft liggen en profiteert daarna van alle vrijheid ⚽#telgae pic.twitter.com/TyaHaMFV37— ESPN NL (@ESPNnl) February 5, 2026 Markið var ansi óvenjulegt en Alfons hafði legið eftir á vellinum, eftir samstuð, og var rétt að komast á fætur aftur þegar boltinn barst fljótt aftur fram og hann komst í dauðafæri. Það færi kláraði Alfons af stakri snilld eins og sjá má hér að ofan. Næsti leikur Go Ahead er aftur gegn Telstar á sunnudaginn en þá í hollensku úrvalsdeildinni. Þar verður Alfons að taka út leikbann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk síðasta sunnudag, eftir tvö gul spjöld í 1-1 jafntefli við Volendam. Stefán Ingi gæti hins vegar þreytt frumraun sína á sunnudaginn.
Hollenski boltinn Tengdar fréttir Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig Stefán Ingi Sigurðarson ætlar ekki að láta háan verðmiða trufla sig hjá nýju félagi í hollensku úrvalsdeildinni, sem þessi hávaxni framherji hefur lengi heillast af. 5. febrúar 2026 10:30 Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira
Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig Stefán Ingi Sigurðarson ætlar ekki að láta háan verðmiða trufla sig hjá nýju félagi í hollensku úrvalsdeildinni, sem þessi hávaxni framherji hefur lengi heillast af. 5. febrúar 2026 10:30