Birtan af Myrkum músíkdögum Ásmundur Jónsson, Björg Brjánsdóttir, Gunnhildur Einarsdóttir og Þráinn Hjálmarsson skrifa 5. febrúar 2026 15:16 „Kanske munu einhverjir segja að þetta verk mitt sé ekki músik. Mér myndi ekki detta í hug að mótmæla þeirri fullyrðingu, því ég veit ekki hvað músik er, eða hvernig músik á að vera. Þess vegna kompónera ég, það er að segja skapa og leita. Þeir sem vita hvað músik er, hvernig músík á að vera hlusta aðeins á músik með það eitt fyrir augum að fá þar með staðfestingu á eigin skoðunum, þeir dæma, meta og vega, skilja sauðina frá höfrunum. Þeir eru óhæfir til að upplifa eitthvað óþekkt, auka nýja þætti í reynslu sína.“[1] Hér að ofan er að finna upphaf forspjalls Atla Heimis Sveinssonar, tónskálds, að tónverkinu Fönsun III sem frumflutt var sumarið 1964. Verkið hlaut hina verstu útreið gagnrýnenda og í aðdraganda að endurflutningi verksins ári síðar, 1965, fann Atli Heimir sig knúinn til þess að skýra frá sjónarhorni verksins og flutti því þetta forspjall við upphaf tónleikanna. Atli Heimir og hans kynslóð tónskálda fluttu hingað heim margar erlendar hugmyndir um tónlist sem höfðu orðið á vegi þeirra á námsárum þeirra í Evrópu og Bandaríkjunum. Hugmyndirnar ögruðu oft á tíðum stöðluðu frásagnarformi tónlistarinnar og leituðu þar að nýjum leiðum til tjáningar. Við tók nýr frásagnarháttur innan tónlistarinnar og í slíkum tilvikum þarf hver og einn hlustandi að finna eigin leiðir til samtengingar. Féllu margar þessar hugmyndir í grýttan jarðveg hér heima á sínum tíma, en hér var á ferð óstöðvandi forvitni og sköpunargleði þessara tónskálda og meðvitund um að tónlist getur nefnilega tekið á sig óendanlegar nýjar myndir, því tónlist er gjörð á milli fólks, ekki formfastur og mælanlegur hlutur. Tjáningarformið getur tekið á sig fjölbreyttar myndir; teikna má á pappír, teikna má í skýin. „Það er orðið nauðsynlegt öllum tónskáldum að fylgjast nákvæmlega með öllum nýjungum, sem skjóta upp kollinum og taka afstöðu til þeirra. Þeir gömlu góðu dagar, þegar tónskáld þurftu lítið annað að gera en láta sér detta í hug nothæf stef og vinna síðan úr þeim á þann hátt, sem þeir höfðu lært á unga aldri, eru löngu liðnir. Núna er það jafn nauðsynlegt tónskáldum og þeim sem fást við raunvísindi að fylgjast vel með í sínu fagi og láta ekkert fara fram hjá sér.“.[2] Árið 1980 stofnuðu Atli Heimir og Þorkell Sigurbjörnsson, tónskáld, tónlistarhátíðina Myrka músíkdaga undir hatti Tónskáldafélags Íslands. Hátíðin hefur síðan þá verið samfélagsrými þar sem fjölbreyttum sjónarhornum og viðhorfum til tónlistar er gert hátt undir höfði. Hátíðin leggur sig fram við að hlúa að samfélagi samtímatónlistar hér á landi og fagna fjölbreytileikanum og breiddinni, sem nær yfir breitt svið tónlistar, svo mætti segja allt frá „nothæfum stefjum“ til „háværrar þagnar“. Það er mikilvægt að hátíð sem þessi endurspegli samfélag sitt hverju sinni sem samsett er af svo fjölmörgum ólíkum og síkvikum sjónarhornum. Hátíð sem þessi gerist ekki í tómarúmi og þarf heilmikinn samtakamátt margra aðila svo að úr verði. Aðstandendur Myrkra músíkdaga eru afar þakklátir þeim hópi ríflega 200 fagmanna í tónlist (og margir þeirra upprennandi fagfólk) sem gerðu hátíðina í ár mögulega og tóku þátt í ólíkum hlutverkum, sem tónskáld, flytjendur og framkvæmdaraðilar, svo ekki sé minnst á þá hundruði gesta hátíðarinnar sem sköpuðu hátíðinni fallegt og jákvætt andrúmsloft. Á hátíðinni í ár voru flutt ein 80 höfundarverk um 60 höfunda, en um helmingur verkanna var frumflutningur og bætist þar með heilmikið í sarp tónlistararfleifðar hér á landi. Á meðal viðburða sem fram fóru á hátíðinni í ár má nefna hljóðinnsetningar, barnadagskrá, kórtónleika, hljómsveitartónleika, hlustunarrými helgaðri raftónlist, hljóðgöngur, sýningu vídjóverka, kammersveitartónleika, sýningu á afrakstri vinnusmiðju um skörun tónlistar og tölvuleikja og margt fleira. Við þökkum áheyrendum frábæra aðsókn og viðtökur og hlökkum til að hitta ykkur að ári á Myrkum músíkdögum 2027. Listráð Myrkra músíkdaga, Ásmundur Jónsson Björg Brjánsdóttir Gunnhildur Einarsdóttir Þráinn Hjálmarsson 1. Atli Heimir Sveinsson, „Forspjall,“ Neisti 3. árgangur, 1. tölublað (1965): 8 2. Atli Heimir Sveinsson, „Sonorities eftir Magnús Blöndal Jóhannsson: Hugleiðngar um Verkið og Höfundinn“, Birtingur 10. árgangur, 1. hefti (1964): 44 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
„
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar