Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Aron Guðmundsson skrifar 4. febrúar 2026 21:58 Orri Steinn í leik með Real Sociedad Vísir/Getty Orri Steinn Óskarsson tryggði Real Sociedad sæti í undanúrslitum spænska bikarsins í fótbolta með sigurmarki gegn Deportivo Alavés í kvöld, lokatölur 3-2 sigur Sociedad.
Íslenski landsliðsfyrirliðinn hefur hægt og bítandi verið að koma sér aftur inn á völlinn eftir erfið meiðsli og hann byrjaði á varamannabekk Real Sociedad í kvöld. Það var í stöðunni 2-1 á 74.mínútu, Deportivo Alavés í vil, sem Orri Steinn kom inn á fyrir Brais Méndez. Tveimur mínútum síðar jafnaði Real Sociedad metin með marki frá Goncalo Guedes, 2-2. Það var síðan skömmu seinna, nánar tiltekið á 80.mínútu sem að boltinn barst til Orra Steins og hann óð með hann inn á vítateig Alavés, skaut boltanum á milli fóta markmanns heimamanna og hann endaði í netinu. 🙌 LOCURAAAAA. GOAZEEEEEEEEEEEEEN!!! 💙 pic.twitter.com/Ytd4IwaO5m— Real Sociedad Fútbol (@RealSociedad) February 4, 2026 Staðan orðin 3-2 Real Sociedad í vil og reyndist mark Orra vera sigurmark leiksins, mark sem tryggði Sociedad sæti í undanúrslitum spænska bikarsins. Kærkomið mark fyrir landsliðsfyrirliðann sem hefur, eins og áður sagði, verið að berjast við krefjandi meiðsli. Þetta var annað mark Orra Steins á tímabilinu, hans fyrsta mark síðan þann 24.ágúst á síðasta ári. Mark af stærri gerðinni fyrir Sociedad en ekki síður Orra Stein.
Spænski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira