Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. febrúar 2026 18:27 Jens Napãtôk er tortrygginn í garð umsvifa Guðmundar Kristjánssonar í grænlenskum sjávarútvegi. Myndin neðst er af fiskvinnslu APF í Nanortalik. Vísir/Samsett Þingmaður eina stjórnarandstöðuflokks Grænlands hefur þungar áhyggjur af umsvifum Guðmundar Kristjánssonar, iðulega kennds við Brim, í grænlenskum sjávarútvegi. Í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi Grænlendinga í dag spurði hann hvort grænlenska þjóðin yrði af fé vegna innherjaviðskipta til Íslands og hvort Arctic Prime-samsteypan sem Guðmundur er stór eigandi í sé í raun leppur sem gætir hagsmuna Íslendinga. „
Lítur hæstvirt landsstjórn svo á að Arctic Prime-samsteypan sé leggfyrirtæki fyrir íslenska hagsmuni?“ spurði hann í síðustu viku en grænlenski miðillinn Sermitsiaq fjallaði um í dag. Spurningarnar má lesa í þessu skjali. Alls bar hann tíu spurningar undir landsstjórnina sem tengjast eignarhlut Guðmundar Kristjánssonar í Brim í útgerðarfélaginu grænlensku Arctic Prime Fisheries ApS. Það félag er í hundrað prósenta eigu Arctic Prime Coastal ApS sem Útgerðarfélag Reykjavíkur á um þriðjungshlut í. Útgerðarfélag Reykjavíkur á Guðmundur Kristjánsson. Hann fullyrðir að Guðmundur Kristjánsson hafi haft mikil áhrif á ákvarðanatöku Arctic Prime Fisheries ApS sem hefur haft árlegan kvóta upp á um tíu þúsund tonn við Grænlandsmið síðan árið 2021. Samsteypan hefur höfuðstöðvar sínar í Qaqortoq á Suður-Grænlandi og samanstendur af þremur félögum: fyrrnefndu Arctic Prime Fisheries ApS, Arctic Prime Coastal ApS og Arctic Prime Production ApS. Félag Guðmundar skili engu til grænlensks samfélags Í málflutningi sínum skrifar Jens Napãtôk’ þingmaður Naleraq-flokksins að Arctic Prime Fisheries hafi í ár einnig fengið 1.400 tonna úthafsþorskkvóta vestur af Grænlandi og sömuleiðis stóran hlut þess úthafsþorskkvóta sem gefinn var út austur af Grænlandi. „Samkvæmt fyrstu málsgrein fiskveiðilaganna er markmið laganna að tryggja að samfélagið fái sem mestan fjárhagslegan ávinning af fiskveiðum til langst tíma. Hvernig horfir það við hæstvirtri landsstjórn að Arctic Prime Fisheries ApS skilar yfirleitt miklu tapi og leggur því ekki sitt af mörkum til grænlensks samfélags í formi tekjuskatts?“ spyr hann þá og heldur áfram: „Samkvæmt ársreikningi Arctic Prime Coastal ApS fyrir árið 2024 er eigið fé samstæðunnar neikvætt um 228 milljónir króna. Lítur hæstvirt landssstjórn svo á að Arctic Prime-samstæðan sé leppfyrirtæki fyrir íslenska hagsmuni?“ Eiginfjárstaða ekki tekin með í reikningin Hann veltir því sömuleiðis fyrir sér hvort neikvætt eigið fé samsteypunnar komi til með að hafa áhrif á mat á framtíðarúthlutun kvóta. Upphaflega hafi það verið rökstutt að úthluta félaginu kvóta með því að það skapi atvinnu á landi í suðurhluta Grænlands. „Það er vel þekkt að hinn valdamikli íslenski athafnamaður Guðmundur Kristjánsson, sem er stærsti eigandi í íslensku sjávarútvegssamstæðunni Brim hf, hafi frá árinu 2014 haft mikil áhrif í Arctic Prime Fisheries ApS. Arctic Prime Fisheries ApS er í hundrað prósenta eigu Arctic Prime Coastal, sem íslenska félagið Línuskip ehf. á þriðjungshlut í. Línuskip ehf. er í hundrað prósenta eigu Guðmundar Kristjánssonar,“ skrifar þingmaðurinn. Í umfjöllun Sermitsiaq kemur fram að Guðmundur Kristjánsson sé langstærsti útlenski athafnamaður í grænlenskum sjávarútvegi. Auk eignarhluta sinna í Arctic Prime Coastal og undirfélags þess Arctic Prime Fisheries á félag Guðmundar, Línuskip ehf., einnig hundrað prósent af Arctic Prime Production ApS sem á fiskvinnslustöðvar í Nanortalik, Qaqortoq og Kummiut. Arctic Prime Coastal heldur utan um starfsemi stöðvanna en það félag er eins og komið hefur fram í þriðjungseigu Guðmundar Kristjánssonar. Jens fari með dylgjur Peter Borg sjávarútvegsráðherra vildi ekki tjá sig um málið þegar Sermitsiaq hafði við hann samband og Hentzar Petersen, forstjóri og stærsti eigandi Arctic Prime Fisheries, hafnaði því alfarið aðfélagið starfaði í þágu íslenskra hagsmuna. „Rétt eins og önnur grænlensk fyrirtæki og fiskveiðilögin kveða á um er undir þriðjungshluta PF í eigu hins íslenska Guðmundar Kristjánssonar og tveir þriðjungshlutar í eigu undirritaðs. Höfuðstöðvar félagsins eru í Qaqortoq, þar sem allar eiginlegar ákvarðanir eru teknar,“ segir Hentzar Petersen í skriflegu svari til Sermitsiaq.
Grænland Sjávarútvegur Brim Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Viðskipti innlent Úr Símanum í rörin Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Atvinnulíf Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Sjá meira