Handbolti

Brand miðlar málum eftir föst skot Al­freðs

Sindri Sverrisson skrifar
Alfreð Gíslason hefur nú stýrt Þýskalandi til silfurs á ÓL og EM, og tekst næst á við HM á heimavelli í byrjun árs 2027.
Alfreð Gíslason hefur nú stýrt Þýskalandi til silfurs á ÓL og EM, og tekst næst á við HM á heimavelli í byrjun árs 2027. EPA/TIL BUERGY

Eftir að hafa stýrt Þýskalandi til silfurverðlauna á EM í handbolta ákvað Alfreð Gíslason að senda loks gagnrýnendum sínum tóninn. Einn forvera hans í starfi, hinn þykkmotta Heiner Brand, er sammála Alfreð en segir suma gagnrýni þó eiga fullan rétt á sér.

Alfreð nafngreindi engan þegar hann skaut á gagnrýnendur í viðtali við Bild en þýskir miðlar segja ljóst að hann hafi verið að tala til fyrrverandi landsliðsmannanna Stefan Kretzschmar, Pascal Hens og Michael Kraus sem saman stýra hlaðvarpinu Harzblut.

„Við vitum öll að þeir hafa ekki mikið vit á þessu. Þeir sem eru með hlaðvarp þurfa að hafa eitthvað að tala um í hverri viku. Enginn þeirra hefur verið þjálfara. Ég veit hvernig taktískur skilningur þeirra er. Og enginn þeirra spilaði í vörn á sínum tíma,“ sagði Alfreð við Bild eftir úrslitaleikinn við Danmörku.

Hlaðvarpstríóið hraunaði yfir Alfreð eftir 30-27 tapið óvænta gegn Serbíu snemma móts, sem að lokum hafði engin áhrif á gengi þýska liðsins, og Kraus sagði til að mynda: „Alfreð, hann þjálfaði hörmulega. Hann þjálfaði hörmulega. Þið getið skrifað það niður.“

„Það er bara þannig að ef við eigum að einhverju leyti slakan leik þá eru þessir uppskafningar tilbúnir að níða okkur,“ sagði Alfreð við Bild.

„Rétt hjá Alfreð“

Heiner Brand, sem stýrði hlaðvarpstríóinu í þýska landsliðinu um árabil og var með Hens og Kraus í heimsmeistaraliði sínu árið 2007, tjáði sig um þetta mál við Sport 1 og vildi nú reyndar helst að öll dýrin í skóginum gætu verið vinir.

„Þeir komu með gagnrýni eftir leik þar sem var klárlega ástæða til að gagnrýna. Ef að menn starfa sem sérfræðingar á stórmóti þá þurfa þeir að segja sína skoðun,“ sagði Brand sem er hins vegar sammála Alfreð að miklu leyti.

Heiner Brand þjálfaði Þýskaland um árabil og fagnar hér heimsmeistaratitlinum 2007 með Michael Kraus, Henning Fritz og Markus Baur. Kraus gagnrýndi Alfreð ansi harkalega á EM.Getty/Lars Baron

„Þessir þrír eru handboltasérfræðingar en það er rétt hjá Alfreð að þeir hafa aldrei þurft að taka neinar ákvarðanir. Það er ansi ólíkt að horfa á leikinn eða að standa þarna sjálfur og þurfa að taka ákvarðanir,“ sagði Brand sem vill eins og fyrr segir að menn slaki nú á.

„Við ættum ekki að leyfa þessu að verða að neinu meira, hvorugir aðila, heldur gleðjast yfir árangri Þýskalands. Við viljum ekki opna aðra ormagryfju og velta vöngum yfir því hverjum sé um að kenna fyrir einhverja hluti og hverjum ekki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×