Fengu engar varanlegar undanþágur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 4. febrúar 2026 06:31 Mér finnst einhvern veginn að þeir sem vilja sannfæra okkur hin um að rétt sé að ganga í Evrópusambandið ættu öðrum fremur að vera með staðreyndir varðandi sambandið á hreinu. Sú er alls ekki alltaf raunin og til að mynda ljóslega ekki í tilfelli Kjartans Jónssonar miðað við grein hans á Vísi í gær þar sem hann fullyrti að Norðmenn hefðu samið við sambandið, síðast þegar þeir höfnuðu inngöngu í það fyrir 30 árum, um að nyðri hluti efnahagslögsögu Noregs yrði áfram á forræði þeirra. Mjög langur vegur er frá því að þetta sé rétt. Kjartan vildi meina að í þessu hefði falizt varanleg undanþága. Norðmenn fóru vissulega fram á slíka undanþágu í umsóknarferlinu að Evrópusambandið en því var hafnað. Þess í stað fengu þeir einungis tímabundna undanþágu í um þrjú og hálft ár. Eftir það færi norskur sjávarútvegur alfarið undir stjórn sambandsins. Um þetta hefur Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor og okkar helzti sérfræðingur í Evrópurétti, fjallað mjög ítarlega. Fram kemur til að mynda í skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann um umsóknarferlið að Evrópusambandinu fyrir utanríkisráðuneytið að út frá skoðun á samningum ríkja sem sótt hafi um inngöngu í sambandið sé ljóst að engar varanlegar undanþágur hafi verið veittar í þeim vegna sjávarútvegsmála en sá hluti skýrslunnar sem fjallar um málaflokkinn var ritaður af Stefáni Má. Þar er einnig fjallað ítarlega um síðustu umsókn Norðmanna um inngöngu í Evrópusambandið. Farið var þannig fram á að Noregur myndi áfram stjórna veiðum á norskum hafsvæðum norðan 62. gráðu norðlægrar breiddar og að allar fiskveiðiauðlindir í norsku efnahagslögunni yrðu áfram tryggðar Norðmönnum. Krafan var meðal annars byggð á því að sjávarafurðir væru mikilvæg útflutningsvara fyrir Noreg og að sjávarútvegur skipti afgerandi máli fyrir bæði búsetu og atvinnulíf við strendur landsins auk þess sem Norðmönnum hefði tekizt vel til við stjórnun fiskveiða sinna. Færð voru enn fremur fram þau rök að norðan 62. breiddargráðu deildi Noregur ekki fiskistofnum með Evrópusambandinu. Niðurstaðan varð engu að síður sú, sem fyrr segir, að Norðmenn fengu í engu varanlegar undanþágur. Norskir ráðamenn settu einnig fram ýmsar tillögur um millileiðir, eins og þá að tilteknar ákvarðanir yrðu áfram í norskum höndum, en allt fyrir ekki. Þá skipti engu að ljóst væri að sjávarútvegur myndi hafa úrslitaáhrif á það hvort Noregur gengi í sambandið. Hafnað var enn fremur þeirri kröfu að Norðmenn færu áfram með samningsvaldið varðandi deilistofna gagnvart Rússlandi. Fyrir vikið er ef til vill ekki að furða að Norðmenn hafi hafnað inngöngu í Evrópusambandið og enn fremur að fleiri hafi verið andvígir því en hlynnir að ganga í sambandið samkvæmt niðurstöðum allra skoðanakannana sem birtar hafa verið í Noregi undanfarin rúm 20 ár þó sjávarútvegur sé alls ekki eina ástæðan fyrir andstöðunni við að ganga þar inn. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar